Subway Körfuboltakvöld: Þrenna Óla Óla Smári Jökull Jónsson skrifar 26. mars 2023 12:45 Ólafur Ólafsson átti frábæran leik á fimmtudag. Vísir Ólafur Ólafsson náði þrefaldri tvennu í sigri Grindavíkur gegn Haukum í Subway-deildinni á fimmtudag. Strákarnir í Subway Körfuboltakvöldi fóru yfir frammistöðu Ólafs í þætti vikunnar.
Grindavík vann góðan 77-72 sigur á Haukum í Subway-deildinni í körfubolta á fimmtudag en þetta var fjórði sigurleikur liðsins í röð. Grindavík hefur komið mörgum á óvart í vetur en liðið situr í sjötta sæti deildarinnar þegar ein umferð er eftir. Í þættinum Subway Körfuboltakvöld á föstudagskvöldið var rætt um lið Grindavíkur og Ólaf Ólafsson fyrirliða liðsins sem hefur spilað frábærlega á undanförnu. Í leiknum gegn Haukum náði Ólafur þrefaldri tvennu, hann skoraði 14 stig, tók 13 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. „Hann er bara að blómstra hann Óli og hann er svo fjölhæfur. Það sem mér finnst best við Óla er að hann er svo mátulega fjölhæfur, það er oft hans mesti styrkur,“ sagði Örvar Þór Kristjánsson einn af sérfræðingum þáttarins. „Hann spilar nú sérstaklega vel á móti Njarðvík alltaf og þessar körfur sem hann skorar í öllum regnbogans litum. Þessi þrenna, þetta er geggjað að sjá þetta,“ bætti Örvar Þór við. Ólafur er sá elsti til að ná þrefaldri tvennu í búningi Grindavíkur og fyrsti íslenski leikmaður liðsins að ná þeim áfanga síðan árið 2016 þegar Jón Axel náði því í leik gegn Þór frá Þorlákshöfn. Alla umræðu þeirra Harðar Unnsteinssonar, Örvars Þórs Kristjánssonar og Brynjars Þórs Björnssonar má sjá í spilaranum hér fyrir neðan en þar fara þeir meðal annars yfir tryggð Ólafs við sitt uppeldisfélag. Klippa: Subway Körfuboltakvöld - Óli Óla er hjartslátturinn í Grindavík.
Subway-deild karla UMF Grindavík Körfuboltakvöld Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira