Lífið

Nauðungarvistun Bynes framlengd

Samúel Karl Ólason skrifar
Amanda Bynes árið 2011.
Amanda Bynes árið 2011. EPA/PAUL BUCK

Nauðungarvistun leikkonunnar Amöndu Bynes hefur verið framlengd um minnst viku og gæti verið framlengd í allt að mánuð. Barna- og táningastjarnan var vistuð á geðdeild fyrir viku, eftir að hún sást ganga nakin um götur Los Angeles.

TMZ hefur eftir heimildarmönnum sínum að Bynes, sem hefur lengi glímt við geðræn vandamál, tali ekki við sína nánustu og óljóst sé hvort hún muni eftir því að hafa búið á götum LA dagana áður en hún var lögð inn.

Upprunalega átti nauðungarvistunin að gilda í þrjá daga.

Sjá einnig: Lögð inn eftir að hún gekk nakin um götur LA

Í grein TMZ segir að svo virðist sem Bynes hafi búið á götum LA í nokkra daga.

Tæpt ár er liðið frá því að dómari felldi úr gildi forræði móður Bynes yfir henni. Móðirin fékk forræðið upphaflega árið 2013 eftir að Bynes greindist með geðhvarfasýki og hafði hún einnig verið í mikilli neyslu. Bynes er 36 ára gömul en móðir hennar studdi það að forræðið yrði fellt úr gildi og sagði Bynes hafa náð miklum árangri.

Dómari sagði á sínum tíma að forræðið væri ekki lengur þarft þar sem Amanda hefði uppfyllt allar þær óskir sem dómstóllinn hafi gert til hennar.

Sjá einnig: Amanda Bynes endurheimti sjálfræðið

Bynes byrjaði ung að leika í vinsælum þáttum vestanhafs. Síðar meir lék hún í kvikmyndum eins og „What a Girl Wants“ með Colin Firth og „She‘s The Man“ með Channing Tatum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.