Lítur blóðmælingar Greenfit alvarlegum augum Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 27. mars 2023 21:00 Steinunn Þórðardóttir er formaður Læknafélags Íslands. arnar halldórsson Formaður læknafélagsins segist lítað það alvarlegum augum að fyrirtæki sem sérhæfi sig í heilsufarsmælingum bjóði upp á blóðmælingar og segir nauðsynlegt að skýr skil séu á milli þess hvað telst heilbrigðisþjónusta og hvað ekki. Embætti landlæknis skoðar nú tilkynningar um fyrirtækið.
Greenfit er fyrirtæki sem sérhæfir sig í heilsufarsmælingum en fólk sem leitar þangað getur farið í svokallaða ástandsskoðun, þar sem allsherjar mat er lagt á heilsu fólks, blóðmælingar framkvæmdar og hin ýmsu próf þreytt. Látinn læknir skrifaður fyrir rannsóknum Umræða skapaðist um starfsemi fyrirtækisins í Facebook hópi lækna á Íslandi fyrir helgi, en þar greindi læknir á heilsugæslu frá því að hafa nýlega tekið á móti blóðrannsókn frá Greenfit sem skrifuð var á ábyrgð læknis frá Palestínu en sá lést árið 2011. Í ljós kom að mistök hjá Landspítalanum urðu til þess að umræddur læknir var skrifaður fyrir tilvísuninni en í kjölfarið sköpuðust umræður í fyrrgreindum hópi um starfsemi Greenfit og ábyrgð á blóðmælingum. Þar velta læknar því upp hvort eðlilegt sé að fyrirtæki sem tæplega geti talist til heilbrigðisþjónustu, bjóði upp á blóðmælingar en það gerir Greenfit í samstarfi við rannsóknarstofuna Sameind. Mikilvægt að skýra hvað sé ekki heilbrigðisþjónusta Læknar hafa haft samband við Læknafélagið vegna málsins og hyggst félagið senda erindi á heilbrigðisyfirvöld. Landlækni hefur jafnframt borist ábendingar um málið sem er samkvæmt upplýsingum frá embættinu í skoðun. „Við lítum þetta almennt alvarlegum augum. Það sem okkur finnst flóknast við þetta er hvað nákvæmlega flokkast sem heilbrigðisþjónusta og viljum að það sé skýrt. Samkvæmt túlkun félagsins þá er það að taka blóðprufur og túlka blóðprufur klárlega heilbrigðisþjónusta sem þarf þá að fá þartilgreint leyfi frá Landlækni þar sem farið er faglega yfir grundvöll starfseminnar og slíkt starfsemi þarf þá líka að lúta eftirliti embættisins,“ segir Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands. Slíkt eigi ekki bara við um blóðprufur heldur fleiri tegundir af læknisfræðilegri greiningu á borð við myndgreiningu og notkun lækningatækja. Lukka Pálsdóttir er stofnandi Greenfit. Hún segir fyrirtækið sinna forvörnum og heilsufarsmælingum.vísir/vilhelm Stofnendur Greenfit eru annars vegar sjúkraþjálfari og hins vegar flugvirki en í skriflegu svari frá Lukku Pálsdóttur, eiganda, kemur fram að hjá fyrirtækinu starfi þverfaglegt teymi fólks með margvíslega menntun svo sem íþróttafræðingar, hjúkrunarfræðingar og læknar. Blóðmælingar séu aðkeypt þjónusta frá vottaðri rannsóknarstofu, Sameind. Segir að um heilbrigðisþjónustu sé að ræða Aðspurð hvort það sé ekki í fínu lagi að fólk greiði fyrir ástandsskoðun eins og Greenfit býður upp á segir Steinunn vissulega gott að fólk sé meðvitað um eigin heilsu. „En þegar þetta er farið út í greiningaraðferðir eins og víðtækar blóðprufur og túlkun á þeim þá finnst okkur þetta vera komið inn á svið heilbrigðisþjónustu og þá eigi fólk að fara þá leið, í gegnum Landlæknisembættið svo þetta sé allt faglega í lagi og uppi á borðum.“ Sextíu þúsund króna blóðmæling Samkvæmt heimasíðu Greenfit kostar ítarleg blóðmæling hátt í sextíu þúsund og ef eitthvað finnst að er viðkomandi bent á að leita til læknis. „Þá fer fólk bara inn í opinbera heilbrigðiskerfið sem er nú þegar mjög ofþanið þannig maður verður að velja vel hvað maður er að rannsaka og gera til að auka ekki sóun í kerfinu. Þannig það getur verið mjög erfitt fyrir opinbera kerfið að taka við gríðarlegu magni af niðurstöðum sem kannski var óþarfi að fá til að byrja með.“
Heilbrigðismál Heilsa Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Sjá meira