Kylie Jenner orðuð við heimsfrægan leikara Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 11. apríl 2023 14:08 Eru Kylie Jenner og Timothée Chalamet nýjasta par Hollywood? Getty/Samsett Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kylie Jenner og leikarinn Timothée Chalamet eru sögð vera að stinga saman nefjum. Frá þessu greina slúðurmiðlar vestanhafs en orðrómurinn fór á kreik eftir að þau mættu saman á tískusýningu fyrr á árinu.
Það var slúðurveitan deuxmoi sem greindi fyrst frá, eftir að henni hafði borist þó nokkrar ábendingar um málið. Nýlega sáust þau svo snæða kvöldverð saman ásamt systur Kylie, Kendall Jenner, og kærasta hennar, Bad Bunny. Þessi orðrómur virðist koma netverjum í nokkuð opna skjöldu sem virðast flestir vera á því máli hér sé um að ræða mjög svo ófyrirsjáanlega pörun. first kendall and bad bunny now timothee chalamet and kylie jenner, the kardashians are going to cause the fall of stan twitter— gai (@gaifashion) April 6, 2023 timothee chalamet and kylie jenner dating wasn t in my 2023 bingo card what the fuck is going on pic.twitter.com/8TIsjdTte8— lisa (@H0MSICKS) April 6, 2023 Kylie Jenner er, eins og frægt er, ein af Kardashian-systrunum heimsþekktu sem slegið hafa í gegn í samnefndum raunveruleikaþáttum. Kylie stofnaði snyrtivörumerkið Kylie Cosmetics þegar hún var aðeins sautján ára gömul. Síðan þá hefur hún látið til sín taka í viðskiptalífinu og er hún í dag metin á 750 milljónir Bandaríkjadollara. Timothée er franskur og bandarískur leikari. Hann er líklega þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndunum Dune, Call Me by Your Name, Little Women og Lady Bird. Þá fer hann einnig með aðalhlutverk í myndinni Wonka sem væntanleg er síðar á þessu ári. Sjá einnig: Fyrstur manna á forsíðu breska Vogue Timothée Chalamet fer með hlutverk Willy Wonka í nýrri mynd.imdb Timothée er 28 ára gamall og Kylie er 25 ára. Kylie á tvö börn með barnsföður sínum, tónlistarmanninum Travis Scott. Kylie og Travis höfðu átt í slitróttu sambandi í rúmlega fimm ár. Í upphafi árs fór svo orðrómur á kreik að þau hefðu slitið sambandinu. Haft var eftir heimildarmanni People að þau væru með ólíkar áherslur í lífinu og myndu að öllum líkindum ekki byrja saman aftur. Kylie Jenner og Travis Scott eiga hina fimm ára gömlu Stormi og hinn eins árs gamla Aire saman.Getty/Tommaso Boddi
Hollywood Ástin og lífið Tengdar fréttir Fyrstur manna á forsíðu breska Vogue Leikarinn Timothée Chalamet fékk þann heiður að vera fyrstur manna til þess að sitja einn á forsíðu tímaritsins breska Vogue. Þar fetar hann í fótspor söngvarans Harry Styles, sem var fyrsti maðurinn til þess að gera slíkt hið sama hjá ameríska Vogue árið 2020. 16. september 2022 16:31 Kylie ekki lengur á toppnum Athafnakonan og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner er ekki lengur með flesta fylgjendur kvenna á Instagram. Leik- og söngkonan Selena Gomez hefur tekið fram úr. 26. febrúar 2023 17:21 Drengur Kylie Jenner loksins kominn með nafn Aðdáendur Jenner geta nú tekið gleði sína á ný því drengurinn er kominn með nafn, og það rétt fyrir eins árs afmælisdaginn. 21. janúar 2023 22:49 Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Fyrstur manna á forsíðu breska Vogue Leikarinn Timothée Chalamet fékk þann heiður að vera fyrstur manna til þess að sitja einn á forsíðu tímaritsins breska Vogue. Þar fetar hann í fótspor söngvarans Harry Styles, sem var fyrsti maðurinn til þess að gera slíkt hið sama hjá ameríska Vogue árið 2020. 16. september 2022 16:31
Kylie ekki lengur á toppnum Athafnakonan og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner er ekki lengur með flesta fylgjendur kvenna á Instagram. Leik- og söngkonan Selena Gomez hefur tekið fram úr. 26. febrúar 2023 17:21
Drengur Kylie Jenner loksins kominn með nafn Aðdáendur Jenner geta nú tekið gleði sína á ný því drengurinn er kominn með nafn, og það rétt fyrir eins árs afmælisdaginn. 21. janúar 2023 22:49
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“