Diljá Ýr skoraði fyrir Norrköping í tapi Smári Jökull Jónsson skrifar 4. maí 2023 19:25 Diljá Ýr Zomers gekk til liðs við Norrköping í vor en hér er hún í búningi Häcken sem hún lék með á síðasta tímabili. Göteborgs Posten/Vísir Diljá Ýr Zomers skoraði mark Norrköping sem beið lægri hlut í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Arnór Sigurðsson og Arnór Traustason voru báðir í byrjunarliði karlaliðs Norrköping sem einnig vann sigur.
Diljá Ýr Zomers gekk til liðs við Norrköping nú í vor en hún var á láni hjá félaginu frá Häcken á síðasta tímabili. Lið Norrköping hefur byrjað tímabilið ágætlega og var í 5. sæti deildarinnar fyrir leikinn í kvöld en andstæðingarnir í Piteå með einu stigi meira og sæti ofar. Heimalið Piteå byrjaði af krafti í dag. Katrina Guillou kom þeim yfir á 12. mínútu en Diljá Ýr jafnaði metin á 20. mínútu, hennar fyrsta mark í deildinni á tímabilinu. Markið er Guillou skoraði hins vegar sitt annað mark skömmu fyrir hálfleik og staðan þá 2-1 fyrir Piteå. Í síðari hálfleik tókst liðunum ekki að bæta við marki. Lokatölur 2-1 fyrir Piteå sem lyftir sér þar með upp í þriðja sæti deildarinnar. Í efstu deild karla í Svíþjóð voru Íslendingar einnig á ferðinni með Norrköping. Arnór Sigurðsson og Arnór Ingvi Traustason voru báðir í byrjunarliði liðsins sem mætti Hammarby á heimavelli. Staðan í hálfleik var markalaus en á síðustu ellefu mínútunum skoraði Christoffer Nyman tvö mörk fyrir Norrköping og tryggði þeim sigurinn. Arnór og Arnór Ingvi léku báðir allan leikinn í liði Norrköping og þá kom Ari Freyr Skúlason inn af bekknum og lék síðustu fimm mínúturnar. Þá lék hinn ungi Adam Ingi Benediktsson í marki IFK Gautaborg sem vann 6-0 stórsigur á Degerfors. Þetta var fyrsti sigur Gautaborg í deildinni sem skoraði sitt fyrsta mark í fimmtu umferðinni um síðustu helgi þegar liðið gerði jafntefli við Norrköping.
Sænski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira