Byrjað að bæta í vind og fyrsta gula viðvörunin hefur tekið gildi Atli Ísleifsson skrifar 23. maí 2023 07:20 Hvassast verður á sunnanverðu og vestanverðu landinu í dag. Vísir/Vilhelm Núna í morgunsárið er byrjað að bæta í vind suðvestanlands og fyrsta gula viðvörunin hefur tekið gildi. Þeim mun svo fjölga er líður á daginn og er enginn landshluti undanskilinn, ef frá eru taldir Austfirðir.
Á vef Veðurstofunnar segir að upp úr hádegi verði suðvestan fimmtán til 23 metrar á sekúndu og hvassast sunnan- og vestanlands. Þurrt að kalla norðaustantil en annars skúrir og stöku haglél. Reikna má með hita á bilinu fimm til fimmtán stig, hlýjast á Norðausturlandi. Gular veðurviðvaranir vegna suðvestan hvassviðris verða í gildi á mestöllu landinu í dag.Veðurstofan Gulu viðvaranirnar eru í gildi ýmist langt fram á kvöld eða til morguns. Viðvörun fyrir Miðhálendið tók gildi snemma í morgun en gular viðvaranir fyrir höfuðborgarsvæðið og Faxaflóa klukkan 10. Varanir taka guldi fyrir Suðurland, Breiðafjörð, Vestfirði, Suðausturland og Strandir og Norðurland vestra klukkan 11 og 12, Austurland að Glettingi klukkan 14 og Norðurland eystra klukkan 15. Seint í kvöld og í nótt dregur svo úr vindi og á morgun verður vestlæg átt, víða tíu til átján metrar á sekúndu, en heldur hægari norðanlands. Skúrir eða slydduél og kólnandi veður en að mestu bjart suðvestantil. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Vestan 10-20 m/s, hvassast með suðurströndinni. Skúrir eða slydduél, einkum fyrir norðan, en þurrt að kalla austast. Hiti 3 til 10 stig, mildast suðaustanlands. Á fimmtudag: Suðvestan 5-13 m/s, hvassast syðst. Bjart að mestu, en dálitlar skúrir norðvestantil. Hiti 7 til 12 stig. Á föstudag: Suðlæg átt og rigning eða súld, en úrkomminna austanlands. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á laugardag: Vestlæg átt með rigningu eða slyddu, en úrkomulítið austanlands. Styttir upp síðdegis. Heldur kólnandi. Á sunnudag og mánudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með súld, en úrkomuminna austanlands. Hlýnandi.
Veður Mest lesið Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Innlent Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Innlent Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Erlent Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Erlent Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Bíll í ljósum logum á Skaganum Innlent Fleiri fréttir Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Sjá meira