Goðsögnum sagt upp störfum hjá Bayern: Tryggðu sér titilinn í dag Aron Guðmundsson skrifar 27. maí 2023 16:53 Hasan Salihamidzic og Oliver Kahn starfa ekki lengur hjá Bayern Munchen Vísir/Getty Bayern Munchen tryggði sér í dag Þýskalandsmeistaratitilinn í knattspyrnu eftir ótrúlega atburðarás í leikjum dagsins í Þýskalandi. Hins vegar var ekki langt um liðið frá titilfögnuðinum þegar að yfirlýsing barst frá Bæjaralandi.
Þjónustu goðsagna félagsins, þeim Oliver Kahn sem sinnti hlutverki framkvæmdastjóra þess og Hasan Salihamidzic yfirmanni knattspyrnumála, er ekki lengur óskað. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá Bayern Munchen aðeins nokkrum klukkustundum eftir að liðið hafði tryggt sér Þýskalandsmeistaratitilinn. Jan-Christian Dreesen mun taka yfir hlutverk Kahn sem framkvæmdastjóri félagsins en leit að eftirmanni Salihamidzic stendur nú yfir. Það hefur mikið gengið á hjá Bayern Munchen á yfirstandandi tímabili. Knattspyrnustjóranum Julian Nagelsmann var fyrr á tímabilinu sagt upp störfum og tók Thomas Tuchel við stjórnartaumunum. Bayern lenti hins vegar í basli með úrslit í þýsku úrvalsdeildinni og hafði ekki örlögin í sínum eigin höndum fyrir lokaumferð deildarinnar í dag. Dortmund, sem hafði örlögin í sínum höndum, mistókst hins vegar að gera sér mat út því. Liðið gerði 2-2 jafntefli við Mainz á heimavelli og Bayern Munchen greip gæsina, vann 2-1 sigur á útivelli gegn Köln og tryggði sér um leið efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.
Þýski boltinn Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Sjá meira