Markasúpa í Lengjudeild kvenna | Grindavík skoraði fimm gegn toppliðinu Siggeir Ævarsson skrifar 13. júní 2023 21:34 Helga Rut Einarsdóttir er aftur kominn á fullt með Grindvíkingum eftir erfið meiðsli Facebook UMFG Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í kvöld og bar þar hæst að Grindvíkingar unnu stórsigur á toppliði HK, 5-3.
Fyrir leikinn voru Grindvíkingar í 6. sæti deildarinnar með tvo sigra, tvö jafntefli, tvö töp og tvö mörk í mínus. Sigur Grindavíkur var nokkuð öruggur eins og úrslitin gefa til kynna, en staðan var 3-2 í hálfleik. Það vantaði ekki mörkin í leiki kvöldsins en í hinum leikjunum voru níu mörk skoruð alls. Afturelding vann þægilegan heimasigur á Augnabliki, 4-0. Fyrirliði Aftureldingar, Hildur Karítas Gunnarsdóttir, var heldur betur á skotskónum en hún skoraði þrennu á tólf mínútna kafla í fyrri hálfleik. Hildur Karítas gekk í raðir Aftureldingar fyrir tímabilið frá Haukum. Hún er komin með 7 mörk í sumar eftir þrennu kvöldsins og er markahæst í deildinni.Afturelding Þá vann Víkingur þægilegan 0-5 sigur á botnliði KR. KR-ingar náðu að halda sjó framan af leik en Víkingar settu eitt mark á 44. mínútu þegar Sigdís Eva Bárðardóttir braut ísinn. Í seinni hálfleik brustu svo allar flóðgáttir. Úrslitin þýða að Víkingskonur tylla sér í toppsæti deildarinnar, tveimur stigum á undan HK, en bæði lið hafa leikið sjö leiki í deildinni. Grindavík og Afturelding klóra sig sömuleiðis upp töfluna, en liðin voru jöfn að stigum með átta stig hvort í 5. og 6. sæti.
Lengjudeild kvenna Fótbolti UMF Grindavík HK Afturelding Víkingur Reykjavík KR Mest lesið Dukic harðorður gagnvart CrossFit: Fyrirtæki sem virðir ekki mannslíf Sport „Margir með konur en eru kannski einir í útlöndum“ Körfubolti Eina félagið án útlendinga: „Þurfum vettvang fyrir unga leikmenn“ Körfubolti Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Enski boltinn Missti stjórn á sér og gaf stig: „Veit að þetta er ekki mjög sænsk hegðun“ Sport Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Íslenski boltinn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Enski boltinn „Sá sem lak þessu er skíthæll“ Körfubolti Nýr Etihad leikvangur hinum megin við Atlantshafið Fótbolti NFL varar leikmenn deildarinnar við glæpahópum Sport Fleiri fréttir Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Alexia Putellas með sitt tvö hundruðasta mark fyrir Barcelona Nýr Etihad leikvangur hinum megin við Atlantshafið Guardiola samdi til ársins 2027 Segja að Haaland og félagar fái gjafapakka frá FIFA Sædís og félagar fyrstar til að stoppa Bæjara Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Danir vilja halda úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Alfreð hættur: „Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og minni fjölskyldu“ Kósovó áfrýjar og Svíar bíða spenntir: „Barátta gegn rasisma“ Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Leið Íslands á HM skýrari: Í þriðja flokki og fá þrjá mótherja UEFA viðurkennir mistök í myndbandsdómgælu í Þjóðadeildinni Systur sömdu á sama tíma Amanda lagði upp mark í Meistaradeildinni Svíar tapa á því að Rúmenum var dæmdur sigur á móti Kósóvó Messi kominn í frí fram í febrúar Fær ekki að eyða í leikmenn í janúar Katrín áfram í Kópavogi Liverpool og Newcastle berjast um Mbeumo Þjálfari Messi hættir Tók fram úr Haaland og varð markahæstur Bjarni áfram hjá KA Sjá meira