Toppliðið býður upp á nudd og toppslag í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2023 14:31 Arnór Gauti Ragnarsson er markahæstur í Lengjudeildinni með átta mörk í fyrstu átta umferðunum og Magnús Már Einarsson þjálfar toppliðið í Mosfellsbænum. Instagram/@aftureldingknattspyrna Það verður mikið um að vera á Malbikstöðinni að Varmá í kvöld þegar tvö efstu lið Lengjudeildar karla í fótbolta mætast.
Heimamenn í Aftureldingu hafa tveggja stiga forskot á Fjölni á toppi deildarinnar og því er toppsætið falt í þessum leik. Leikurinn hefst klukkan 19.15. View this post on Instagram A post shared by Afturelding Knattspyrnudeild (@aftureldingknattspyrna) Afturelding hefur unnið sex af átta deildarleikum sumarsins og er með fjórtán mörk í plús í markatölu (23-9). Bæði liðin eru taplaus því Fjölnismenn eru með fimm sigra og þrjú jafntefli í sínum átta leikjum og markatala þeirra er tíu mörk í plús (18-8). Efsta liðið fer beint upp í Bestu deildina en liðin í öðru til fimmta sæti fara í umspil um hitt lausa sætið. Alveg eins og í fyrra er boðið upp á stórskemmtilega viðburði í tengslum við alla heimaleiki Aftureldingar. Í fyrstu þremur heimaleikjum sumarsins hefur verið fótsnyrting hjá Fótaaðgerðarstofu Mosfellsbæjar, rauðvínssmakk hjá Zenato og í síðasta leik gegn Njarðvík var hægt að fara í klippingu í stúkunni hjá Studio 110. Á leiknum gegn Fjölni í kvöld verður aftur á móti hægt að fá fimmtán mínútna axlarnudd á þrjú þúsund krónur. Það er smá lúxus í því að horfa á góðan fótboltaleik og fá nudd í leiðinni. View this post on Instagram A post shared by Afturelding Knattspyrnudeild (@aftureldingknattspyrna)
Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Keppti langt fram á nótt og tapaði fimmtánda leiknum í röð Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Einn sá besti snýr aftur Kastaði upp og í tárum eftir tapið Settur til hliðar vegna ákæru Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Dagskráin í dag: Meistararnir gegn Villa og grannaslagur í Kópavogi Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjá meira