Lægðin yfir miðju landinu en vindurinn mun ekki ná sér á strik Atli Ísleifsson skrifar 30. júní 2023 07:15 Hitinn á landinu verður á bilinu sjö til fjórtán stig í dag. Vísir/Vilhelm Miðja lægðarinnar, sem stýrt hefur veðrinu á landinu síðustu daga, er nú yfir miðju landinu. Lægðin er hins vegar orðin gömul og þrýstiflatneskja er í miðju hennar sem þýðir að vindur mun ekki ná sér á strik í dag. Það verða þó skúrir víða um land.
Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að vindátt á landinu verði breytileg og hraðinn þrír til átta metrar á sekúndu. Hitinn verður á bilinu sjö til fjórtán stig. „Enn er þó nægur raki eftir í lægðinni og því má búast við vætu nokkuð víða á landinu í dag og líklega verður úrkoman skúrakennd þegar líður á daginn.Á morgun þokast miðja lægðarinnar til suðausturs. Það þýðir að það gengur í norðaustan 5-13 m/s á norðanverðu landinu með dálítilli ringingu. Hægari vindur sunnantil og skúrir, sums staðar efnismiklar dempur síðdegis,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðaustan 5-13 m/s og dálítil rigning norðanlands. Hægari sunnantil og líkur á skúrum, einkum síðdegis. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. Á sunnudag: Norðan og norðaustan 5-13 m/s og súld eða dálítil rigning, en þurrt að mestu á Suður- og Vesturlandi. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast sunnan heiða. Á mánudag: Norðlæg átt og bjart veður á Suður- og Vesturlandi, annars skýjað en úrkomulítið. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Norðanátt og rigning með köflum norðan- og austanlands, en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Hiti 6 til 16 stig, mildast suðvestantil. Á miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir áframhaldandi norðanátt með lítilsháttar vætu á norðanverðu landinu, en bjart með köflum sunnantil. Svipaður hiti áfram.
Veður Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Fleiri fréttir Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Sjá meira