Skoðun

Hver leik­stýrir Svf. Ár­borg?

Tómas Ellert Tómasson skrifar

Sveitarfélagið Árborg hefur vaxið mikið á undanförnum árum og stefnir í áframhaldandi vöxt vegna eftirspurnar frá nýjum íbúum og áforma landeigenda um uppbyggingu.

Miklum vexti fylgja ýmsar áskoranir fyrir sveitarfélagið í fjármálum. Víðtæk uppbygging á nauðsynlegum fjárfrekum innviðum og margvísleg þjónusta og vaxandi umsvif er allt hluti af þeim áskorunum sem takast þarf á við stjórn fjármála hjá sveitarfélaginu. Fjóla Kristinsdóttir bæjarstjóri hefur staðið sig að mörgu leyti vel í þeim krefjandi aðstæðum sem ljós voru í upphafi hennar tíðar.

Það sem olli mér vonbrigðum í störfum núverandi bæjarstjórnarmeirihluta var að í stað þess að ráðast strax í þá vinnu sem að búið var að samþykkja í bæjarstjórn á vordögum 2022 að þá var fyrsta verk nýs bæjarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokksins að hækka laun formanns bæjarráðs um 210%, ofan á föst bæjarfulltrúalaun og þóknanir fyrir formennsku í fastanefnd og nefndum byggðasamlaganna. Laun og þóknanir sem skila formanni bæjarráðs yfir einni og hálfri milljón króna á mánuði eða 18mkr. á ári.

Siðlaust, en hver leikstýrir formanni bæjarráðs Svf. Árborgar?

Höfundur er fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins í Svf. Árborg.




Skoðun

Skoðun

Barn fyrir bíl

Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar

Sjá meira


×