Enska sambandið gæti boðið Sarinu Wiegman að þjálfa karlalandsliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. ágúst 2023 11:00 Australia v England Semi Final - FIFA Women's World Cup Australia & New Zealand 2023 SYDNEY, AUSTRALIA - AUGUST 16: Sarina Wiegman, Head Coach of England, celebrates after the team's 3-1 victory and advances to the final following the FIFA Women's World Cup Australia & New Zealand 2023 Semi Final match between Australia and England at Stadium Australia on August 16, 2023 in Sydney, Australia. (Photo by Maryam Majd/Getty Images) Enska knattspyrnusambandið sér þjálfara kvennalandsliðsins sem góðan kost til að taka við þjálfun karlalandsliðsins.
Gareth Southgate er þjálfari karlalandsliðs Englands og hefur verið það frá tapinu vandræðalega á móti Íslandi á EM sumarið 2016. Ef eða þegar Southgate hættir með karlalandsliðið þá þykir Sarina Wiegman, þjálfari kvennalandsliðsins, koma til greina ef marka má Mark Bullingham, stjórnarformann enska sambandsins. #England #Lionessess #ThreeLions THE FA TODAY:Any approach for England s Sarina Wiegman would be "100% rejected", says FA chief executive Mark BullinghamALSO THE FA TODAY :FA considering Sarina Wiegman as a potential replacement for Gareth Southgate#ItsComingHome https://t.co/JCkWZoVVot pic.twitter.com/vEi6fSVgWp— MR. GOLDFINGER (@Dr___H___Lekter) August 17, 2023 Wiegman er enn á ný búin að koma enska kvennalandsliðinu í úrslitaleik en liðið spilar um heimsmeistaratitilinn við Spán á sunnudaginn. Enska landsliðið varð Evrópumeistari fyrir þrettán mánuðum síðan og vann meistarakeppni Evrópu og Suður-Ameríku í vor. Áður en hún tók við enska landsliðinu þá hafði hún gert Holland að Evrópumeisturum. Enska landsliðið hefur misst marga lykilmenn úr Evrópumeistaraliðinu en Wiegman er samt búin að búa til annan frábæran og samheldan hóp. Wiegman er með samning við enska sambandið til ársins 2025. Það er vitað að bandaríska sambandið hefur mikinn áhuga á að fá hana til að taka við sínu landsliði nú þegar Vlatko Andonovski er hættur eftir hörmulegt heimsmeistaramót. „Fólk segir alltaf að finna besta manninn í starfið eða að besta Englendinginn. Af hverju þarf þetta að vera karl? Ég held að okkar svar sé alltaf að finna besta einstaklinginn í starfið. Við teljum að Sarina sé að gera frábæra hluti og heldur því vonandi lengi áfram. Ég held að Sarina geti gert það sem henni langar til í fótboltanum,“ sagði Mark Bullingham í samtali við ESPN. „Ef hún á einhverjum tímapunkti vill færa sig yfir í karlafótboltann þá yrði þetta mjög áhugavert skref. Það er samt fyrir hana að ákveða slíkt. Ég tel ekki að við lítum á það sem svo að þetta væri stöðuhækkun. Ef hún vill hins vegar prófa að fara í aðra átt þá tel ég að hún ráði vel við það,“ sagði Bullingham. | The English Football Association will consider Sarina Wiegman as a candidate to take charge of the senior men's team if, or when, Gareth Southgate moves on from his role as manager, FA chief executive Mark Bullingham said.#Lionesses | #ThreeLions (@MarkOgden_ // pic.twitter.com/Wv9wNckybK— Everything England (@TheEngllshGame) August 17, 2023
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Enski boltinn Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Fleiri fréttir Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Liðsstjóri Ferrari á spítala Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Dagskráin í dag: Tímatökur í Mónakó og æfingalandsleikir Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Þarf að draga sig úr keppni í undanúrslitum Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Örn tekur við karlaliði Selfoss Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira