Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna skotárásar í Kristjaníu Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. ágúst 2023 19:33 Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í umfangsmikilli lögregluaðgerð í fríríkinu Kristjánu núna þar sem átti sér stað skotárás fyrr í kvöld. Getty Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í umfangsmiklum aðgerðum í Kristjaníu vegna skotárásar sem átti sér stað þar klukkan 19:25 að staðartíma. Lögreglan segir að fólk hafi lent í skothríðinni en gefur ekki upp fjölda særðra.
Skotárásin átti sér stað fyrir um tveimur tímum við Stjerneskibet, sögufrægt hús við Pusher-stræti í fríríkinu. Húsið hefur í gegnum tíðina einnig verið kallað hús Grænlendinga en lögreglan er þar búin að girða af stórt svæði. Ekstrabladet greinir frá því að rokkari tengdur Hells Angels hafi verið skotinn. Fyrir um klukkutíma síðan staðfesti lögreglan í Kaupmannahöfn á Twitter að fólk hefði verið skotið. Vi kan i forbindelse med situationen på Christiania bekræfte at flere er ramt af skud. Nærmere tilgår https://t.co/44KSPz4i1L— Københavns Politi (@KobenhavnPoliti) August 26, 2023 Ekstrabladet segir að búið sé að girða af Prinsessugötu og Bátsmannsstræti og er svæðið vaktað af fjölda lögreglumanna með hunda. Þá eru nokkrir sjúkrabílar á vettvangi og segir Ekstrabladet að þegar hafi tveir sjúkrabílar ekið af vettvangi og var að minnsta kosti annar þeirra með kveikt á sírenunum. „Við erum að vinna á fullu þar núna. Við erum í umfangsmiklum lögregluaðgerðum þar sem við þurfum að ná yfirsýn yfir það sem gerðist nákvæmlega,“ sagði Martni Kajberg, yfirlögregluþjónn lögreglunnar í Kaupmannahöfn við Ritzau.
Danmörk Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira