Lífið

Sagður hafa fengið nóg af partýstandinu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hjónin kynntust á Instagram árið 2016 þegar Joe sendi Sophie óvænt skilaboð.
Hjónin kynntust á Instagram árið 2016 þegar Joe sendi Sophie óvænt skilaboð. GETTY/DAVID CROTTY

Joe Jonas er sagður hafa fengið nóg af partýstandi Sophie Turner. Segir banda­ríski slúður­miðillinn Pa­geSix að það sé ein af helstu á­stæðum þess að þau hafi skilið að borði sæng.

Eins og fram hefur komið á­kvað Jonas bróðirinn og Game of Thrones leik­konan að binda enda á fjögurra ára hjóna­band sitt á dögunum. Þau eiga saman tvær dætur og lífið virtist leika við hjónin sem giftu sig tvisvar árið 2019, í Las Vegas og í Frakk­landi.

Banda­rískir slúður­miðlar hafa nú greint frá því að það hafi verið Jonas bróðirinn sem sótti um skilnað. Hefur Pa­geSix eftir ó­nefndum heimildar­manni sem sagður er vera náinn hjónunum að partý­stand Turner hafi farið öfugt ofan í söng­varann.

„Henni finnst gaman að djamma, á meðan honum finnst gott að vera heima. Þau lifa mjög ó­líkum lífs­stíl,“ hefur banda­ríski slúður­miðillinn eftir hinum ó­nefnda heimildar­manni. Full­yrt er að þau Turner og Jonas hafi gert kaup­mála sín á milli þegar þau giftu sig og því sé engra deilna að vænta á milli þeirra nú.

Að sögn Pa­geSix ætla hjónin þá að deila for­ræði yfir dætrum sínum, hinni þriggja ára gömlu Willu og eins árs dóttur þeirra, hvers nafn þau hafa aldrei sagt frá opin­ber­lega. Joe er sagður hafa leitað til stjörnu­lög­fræðingsins Tom Sasser, sem áður að­stoðaði golfarann Tiger Woods þegar hann skildi við fyrir­sætuna Eli Nor­de­gren.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.