Vindur með hægasta móti en víða súld eða rigning Atli Ísleifsson skrifar 7. september 2023 07:17 Gera má ráð fyrir að það dragi úr vætu eftir hádegi. Vísir/Vilhelm Dálítið lægðardrag er nú yfir landinu og er vindur með hægasta móti, en víða er súld eða rigning.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það dragi úr vætu eftir hádegi og muni dragið þokast til norðausturs. Hiti verður á bilinu átta til sextán stig og hlýjast á Austurlandi. „Seinnipartinn í dag fer að nálgast lægð úr vestri og í kvöld má því búast við vaxandi sunnanátt á Suður- og Vesturlandi og það bætir í rigninguna þegar regnsvæði lægðarinnar nær landi. Á morgun gera spár ráð fyrir að áðurnefnd lægð verði stödd skammt vestur af Breiðafirði og valdi suðvestan strekkingi eða allhvössum vindi. Með fylgir rigning eða skúrir, en norðaustan- og austanlands ætti að verða þurrt og bjart veður og þar verður jafnframt hlýjast, eða um 17 stiga hiti þar sem best lætur,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðvestan 10-18 m/s og rigning eða skúrir, en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi. Á laugardag: Snýst í norðan 5-13, en vestlægari sunnanlands. Súld eða rigning á norðanverðu landinu, skúrir sunnantil fram eftir degi, en bjartviðri á Austfjörðum. Hiti 6 til 13 stig, svalast fyrir norðan. Á sunnudag: Austan og norðaustan 5-13 og rigning með köflum, en þurrt að kalla um landið norðan- og vestanvert. Hiti frá 4 stigum í innsveitum fyrir norðan, upp í 11 stig syðst. Á mánudag: Hæg breytileg átt og léttskýjað, en stöku skúrir syðst á landinu. Hiti 5 til 10 stig, en kaldara að næturlagi. Á þriðjudag: Suðaustanátt og dálítil rigning á Suður- og Vesturlandi, en léttskýjað fyrir norðan og austan. Hiti 6 til 12 stig. Á miðvikudag: Austlæg átt og dálítil rigning sunnanlands, en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira