Framhjáhald og barn í Bandaríkjunum orsaki fjarveru ráðherrans Jón Þór Stefánsson skrifar 20. september 2023 20:00 Qin Gang gengdi embætti utanríkisráðherra í sjö mánuði. Ástæðan fyrir brotthvarfi hans er sögð vera heilsufarsvandamál EPA Ástæða þess að Qin Gang, fyrrverandi utanríkisráðherra Kína, var sviptur embætti í júlí á þessu ári er sögð vera framhjáhald hans. Hann er sagður eiga barn í Bandaríkjunum með konu, sem er ekki eiginkona hans.
Gang gegndi embætti sínu í sjö mánuði, þangað til að hann hvarf skyndilega af sjónarsviðinu í sumar. Mánuði eftir hvarfið var hann sviptur embætti. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu var því haldið fram að það væri af heilsufarslegum ástæðum. Framhjáhaldið á að hafa staðið yfir allan tíma hans í embætti. Áður en Gang varð utanríkisráðherra var hann diplómati í Washington, en talið er mögulegt að umrætt framhjáhald hafi hafist þegar hann var í því embætti. The Wall Street Journal fjallar um málið, en í frétt miðilsins segir að háttsettum kínverskum ráðamönnum hafi verið greint frá brotthvarfi ráðherrans á fundi í síðasta mánuði. Þau hafi einnig verið upplýst um að framhjáhald Gang hafi komið í ljós við rannsókn Kínverska kommúnistaflokksins. Þeim hafi verið tilkynnt að ástæða brotthvarfsins væru „lífstílsvandræði“, sem Wall Street Journal fullyrðir að sé algengt veigrunarorð innan kommúnistaflokksins yfir kynlífsskandala. Þessum ráðamönnum hafi einnig verið tilkynnt að Gang hafi stundað framhjáhald sem hafi orðið til þess að hann eignaðist barn í Bandaríkjunum. Þau fengu hvorki að vita nafn móðurinnar né barnsins. Rannsókn flokksins heldur áfram, en nú er að mestu skoðað hvort hegðun Gang hafi ógnað þjóðaröryggi Kína. Ráðherrann fyrrverandi er sagður samstarfsfús í þeirri rannsókn.
Kína Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira