Vålerenga komið í bikarúrslit eftir framlengdan leik Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. september 2023 17:20 Ingibjörg Sigurðardóttir í leik með Vålerenga. Vålerenga Ingibjörg Sigurðardóttir, fyrirliði Vålerenga, kom inn á sem varamaður í 3-2 sigri liðins gegn Lyn í undanúrslitum norska bikarsins. Framlengingu þurfti til að skera úr um úrslitin en Vålerenga komst á endanum í sín þriðju bikarúrslit á fjórum árum.
Vålerenga vonast til að endurheima bikarinn eftir tap í fyrra, þar áður unnu þær tvö ár í röð. Lyn hefur hins vegar aldrei náð svo langt, liðið komst í 8-liða úrslit í fyrra og fyrsta skipti í undanúrslit núna. Lyn komst yfir á 32. mínútu með marki frá Kamillu Melgård og heimakonum tókst ekki að jafna fyrr en líða tók á seinni hálfleikinn. Karina Sævik skoraði fyrir Vålerenga á 64. mínútu og þá færðist fjör í leikinn. Ingibjörg Sigurðardóttir kom inn á nokkrum mínútum eftir jöfnunarmarkið, skömmu síðar komu svo tvö mörk með tveggja mínútna millibili, Lyn tók forystuna aftur en Vålerenga jafnaði strax. Það þurfti svo að framlengja leikinn til að ákveða sigurvegara, gestirnir höfðu gefið allt sem þær áttu í nítíu mínútur og urðu að lúta í lægra haldi gegn sterkum andstæðingum í Vålerenga. Elise Thorsnes skoraði sigurmarkið strax á upphafsmínútum framlengingarinnar og tryggði sigurinn fyrir Vålerenga sem er komið í úrslitaleik bikarsins gegn Rosenborg.
Norski boltinn Mest lesið McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti Hvað gera flokkarnir fyrir afreksfólk í íþróttum? Sport Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Körfubolti Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Enski boltinn „Tími til kominn að taka afstöðu gegn Ísrael“ Sport Fleiri fréttir Í beinni: Arsenal - Nottingham Forest | Skytturnar mæta spútnikliðinu Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Alexia Putellas með sitt tvö hundruðasta mark fyrir Barcelona Nýr Etihad leikvangur hinum megin við Atlantshafið Guardiola samdi til ársins 2027 Segja að Haaland og félagar fái gjafapakka frá FIFA Sædís og félagar fyrstar til að stoppa Bæjara Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Danir vilja halda úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Alfreð hættur: „Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og minni fjölskyldu“ Kósovó áfrýjar og Svíar bíða spenntir: „Barátta gegn rasisma“ Sjá meira