Ísak Snær kom Rosenborg á bragðið þegar liðið vann loks leik Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. október 2023 22:00 Ísak Snær sýndi góð tilþrif þegar hann kom Rosenborg yfir. Vísir/Getty Images Eftir fimm leiki án sigurs vann Rosenborg loks sigur í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta þegar það heimsótti Vålerenga. Ísak Snær Þorvaldsson skoraði fyrsta mark leiksins sem endaði með 3-1 sigri Rosenborg.
Ísak Snær hóf leik sem fremsti maður og það tók hann aðeins 12 mínútur að setja mark sitt á leikinn þegar hann skoraði eftir undirbúning Jayden Nelson. Sá síðarnefndi hafði átt góðan sprett upp vinstri vænginn, Ísak Snær fékk boltann á ferðinni, tók góða snertingu og kláraði færið sitt frábærlega. Var þetta annað mark Ísaks í norsku deildinni. Aðeins tveimur mínútum síðar hafði Nelson tvöfaldað forystuna fyrir gestina sem vissu vart hvað var í gangi enda ekki unnið leik heillengi. Andrej Ilić minnkaði muninn fyrir heimamenn áður en fyrri hálfleik lauk, staðan 2-1 í hléinu. Heimamenn fengu vítaspyrnu í upphafi fyrri hálfleiks og gátu því jafnað metin en spyrna Stefan Strandberg fór forgörðum og Rosenborg enn í forystu. Ole Sæter, sem hafði komið inn á fyrir Ísak Snæ, gerði svo út um leikinn með þriðja marki gestanna á 76. mínútu. Lokatölur leiksins 1-3 og Rosenborg nú með 33 stig í 10. sæti eftir 26 leiki. Vålerenga er með 24 stig og í bullandi fallbaráttu. Samantekt úr leiknum má finna á Youtube-síðu TV 2 Sport.
Fótbolti Norski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira