Besta byrjun landsliðsþjálfara í 59 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. nóvember 2023 12:01 Snorri Steinn Guðjónsson byrjar vel með íslenska landsliðið. vísir/hulda margrét Snorri Steinn Guðjónsson stýrði íslenska karlalandsliðinu í handbolta í fyrsta sinn í tveimur leikjum í Laugardalshöllinni um helgina. Niðurstaðan var betri en við höfum séð í frumraun landsliðsþjálfara í næstum því sex áratugi. Íslensku strákarnir unnu báða leikina, fimmtán marka sigur í þeim fyrri (39-24) og eins marks sigur í þeim seinni (30-29). Fyrri leikurinn lagði grunninn að góðri útkomu helgarinnar en Snorri var samt aðeins sjötti fastráðni landsliðsþjálfarinn sem vinnur fyrstu tvo leiki sína með liðinu. Útkoman voru tvær sigrar og sextán mörk í plús. Það er einu marki betri byrjun en hjá Aroni Kristjánssyni árið 2012. Aron stýrði liðinu þá til sigurs á Hvíta-Rússlandi (36-28) og Rúmeníu (37-30). Þorbjörn Jensson vann líka tvo fyrstu leiki sína með landsliðinu með samtals fjórtán marka mun en þeir voru á móti Noregi (27-23) og Austurríki (29-19) haustið 1995. Í raun þarf að fara alla leið aftur til ársins 1964 til að finna betri byrjun hjá landsliðsþjálfara í tveimur fyrstu leikjum sínum. Karl G. Benediktsson stýrði þá íslenska landsliðinu til sigurs í tveimur leikjum á móti Bandaríkjunum á Keflavíkurflugvelli. Fyrri leikurinn vannst með átján mörkum, 32-14, og sá seinni með sextán mörkum, 32-16. Karl var þá að undirbúa íslenska landsliðið fyrir HM í Tékkóslóvakíu þar sem liðið vann síðan tvo fyrstu leiki sína þar af 12-10 marka sigur á Svíum sem er einn af stærstu sigrunum í sögu íslenska karlalandsliðsins í handbolta. Besta byrjun landsliðsþjálfara í fyrstu tveimur leikjum sínum: Karl G. Benediktsson 1964 2 sigrar og +34 Snorri Steinn Guðjónsson 2023 2 sigrar og +16 Aron Kristjánsson 2012 2 sigrar og +15 Þorbjörn Jensson 1005 2 sigrar og +14 Jóhann Ingi Gunnarsson 1978 2 sigrar og +11 Birgir Björnsson 1977 2 sigrar og +8 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira
Íslensku strákarnir unnu báða leikina, fimmtán marka sigur í þeim fyrri (39-24) og eins marks sigur í þeim seinni (30-29). Fyrri leikurinn lagði grunninn að góðri útkomu helgarinnar en Snorri var samt aðeins sjötti fastráðni landsliðsþjálfarinn sem vinnur fyrstu tvo leiki sína með liðinu. Útkoman voru tvær sigrar og sextán mörk í plús. Það er einu marki betri byrjun en hjá Aroni Kristjánssyni árið 2012. Aron stýrði liðinu þá til sigurs á Hvíta-Rússlandi (36-28) og Rúmeníu (37-30). Þorbjörn Jensson vann líka tvo fyrstu leiki sína með landsliðinu með samtals fjórtán marka mun en þeir voru á móti Noregi (27-23) og Austurríki (29-19) haustið 1995. Í raun þarf að fara alla leið aftur til ársins 1964 til að finna betri byrjun hjá landsliðsþjálfara í tveimur fyrstu leikjum sínum. Karl G. Benediktsson stýrði þá íslenska landsliðinu til sigurs í tveimur leikjum á móti Bandaríkjunum á Keflavíkurflugvelli. Fyrri leikurinn vannst með átján mörkum, 32-14, og sá seinni með sextán mörkum, 32-16. Karl var þá að undirbúa íslenska landsliðið fyrir HM í Tékkóslóvakíu þar sem liðið vann síðan tvo fyrstu leiki sína þar af 12-10 marka sigur á Svíum sem er einn af stærstu sigrunum í sögu íslenska karlalandsliðsins í handbolta. Besta byrjun landsliðsþjálfara í fyrstu tveimur leikjum sínum: Karl G. Benediktsson 1964 2 sigrar og +34 Snorri Steinn Guðjónsson 2023 2 sigrar og +16 Aron Kristjánsson 2012 2 sigrar og +15 Þorbjörn Jensson 1005 2 sigrar og +14 Jóhann Ingi Gunnarsson 1978 2 sigrar og +11 Birgir Björnsson 1977 2 sigrar og +8
Besta byrjun landsliðsþjálfara í fyrstu tveimur leikjum sínum: Karl G. Benediktsson 1964 2 sigrar og +34 Snorri Steinn Guðjónsson 2023 2 sigrar og +16 Aron Kristjánsson 2012 2 sigrar og +15 Þorbjörn Jensson 1005 2 sigrar og +14 Jóhann Ingi Gunnarsson 1978 2 sigrar og +11 Birgir Björnsson 1977 2 sigrar og +8
Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira