Lífið samstarf

Loksins getur öll fjöl­skyldan notið Skopp saman

Skopp
Með tilkomu Barnaskopps, sem er ætlað börnum á aldrinum 0-4 ára, getur fjölskyldan nú mætt í Skopp með börn á dreifðum aldri.
Með tilkomu Barnaskopps, sem er ætlað börnum á aldrinum 0-4 ára, getur fjölskyldan nú mætt í Skopp með börn á dreifðum aldri.

Nýtt trampólínsvæði opnaði nýlega fyrir yngstu börnin í Skopp í Kópavogi þar sem öll fjölskyldan getur nú skoppað saman.

Trampólíngarðurinn Skopp á Dalvegi hefur nú tekið í notkun glænýtt og spennandi trampólínsvæði ætlað yngstu gestum garðsins. Trampólínsvæðið, sem hefur fengið nafnið Barnaskopp, er ætlað börnum á aldrinum 0 - 4 ára.

„Við erum virkilega glöð yfir því að geta loksins mætt þörfum fjölskyldna með börn á dreifðum aldri. Nýja trampólínsvæðið er virkilega skemmtilegt og er frá sama framleiðanda og trampólínin sem fyrir eru í garðinum,“ segir Þórey Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Skopp.

Börn á aldrinum 0-4 ára skemmta sér vel í Barnaskoppi.

Öryggi ofar öllu

Rekstraraðilar Skopp á Dalvegi setja öryggi viðskiptavina í algjöran forgang. Á síðasta ári var aldurstakmarkinu í garðinn breytt á þann veg að aðgengi yngri barna var takmarkað við sérstaka krakkatíma. Var sú ákvörðun tekin til þess að lágmarka hættuna á óhöppum og hámarka öryggi allra viðskiptavina. Markmiðið var að koma í veg fyrir að yngri börn væru að skoppa innan um eldri og stærri börn.

„Um leið og við breyttum aldurstakmarkinu settum við af stað vinnu við að útfæra nýtt trampólínsvæði fyrir yngri börnin af því að við vissum að þessi breyting hefði í för með sér skerðingu á notkunarmöguleikum garðsins fyrir fjölskyldur með börn á dreifðum aldri. Það gleður okkur því mikið að geta nú boðið krökkum á öllum aldri að Skoppa hjá okkur og viljum sérstaklega bjóða þessar fjölskyldur velkomnar til okkar aftur,“ segir Þórey.

Stöðugar endurbætur og nýjungar

Frá því að nýir eigendur tóku við rekstrinum í september 2021 hefur verið unnið stöðugt að því að gera garðinn bæði öruggari og skemmtilegri. Nýr klifurveggur og uppblásinn fótboltavöllur eru á meðal nýjunga sem njóta mikilla vinsælda. Nýjasta viðbótin er svo nýja trampólínsvæðið fyrir yngri börnin, Barnaskopp.

„Við erum hvergi nærri hætt hér í Skopp. Á næsta ári ætlum við að ráðast í viðamiklar breytingar á móttökusvæðinu og stórbæta alla biðaðstöðu og framboð og úrval veitinga. Eins fá afmælisherbergin á annarri hæðinni alveg nýja ásýnd,“ bætir Þórey við að lokum.

Bókaðu Skopp á skoppisland.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.