Meistaraliðið tapaði í lokaumferðinni Smári Jökull Jónsson skrifar 18. nóvember 2023 14:27 Fyrirliðinn Ingibjörg með titilinn sem Vålerenga tryggði sér um síðustu helgi. @VIFDamer Nýkrýndir Noregsmeistarar Vålerenga töpuðu fyrir Rosenborg í lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Ingibjörg Sigurðardóttir er fyrirliði Vålerenga sem varð meistari um síðustu helgi eftir að ljóst var að Rosenborg hafði ekki unnið sigur í sínum leik. Rosenborg var einmitt liðið sem Vålerenga mætti í dag. Það sem flestir bjuggust við að yrði hreinn úrslitaleikur um titilinn varð að leik sem skipti aðeins máli fyrir Rosenborg sem þurfti stig eða sigur til að tryggja sér annað sætið og þar með Evrópusæti á næstu leiktíð. Ingibjörg var á sínum stað í byrjunarliði Vålerenga í dag en Selma Sól Magnúsdóttir byrjaði leikinn á bekknum hjá Rosenborg en kom inná á lokamínútu leiksins. Staðan í hálfleik var 0-0 en Rosenborg gerði út um leikinn með þremur mörkum á níu mínútna kafla um miðjan síðari hálfleikinn. Þar með tryggði liðið sér sæti í undankeppni Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð. Natasha Anasi-Erlingsson var í byrjunarliði Brann sem gerði 2-2 jafntefli við LSK á heimavelli. LSK var í baráttu við Rosenborg um 2. sæti deildarinnar fyrir leikinn og þurfti að vinna sigur á Brann sem var í 4. sætinu auk þess að treysta á að Rosenborg tapaði stigum. LSK komst í 1-0 á annari mínútu leiksins en Brann var búið að snúa leiknum sér í við og komið í 2-1 tæpum tuttugu mínútum síðar. Liði LSK tókst að jafna metin á lokamínútunum en það dugði ekki til þar sem Rosenborg vann sinn leik örugglega. Lokatölur 2-2 og Natasha og stöllur hennar ljúka keppni í 4. sæti en LSK sæti ofar.
Norski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Sjá meira