Komst að því að hann væri á einhverfurófi eftir ferilinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. nóvember 2023 13:31 Greg Halford tæklar Jason Koumas. getty/Gareth Copley Fyrrverandi leikmaður í ensku úrvalsdeildinni var greindur með einhverfu á þessu ári.
Greg Halford lék 28 leiki með Reading, Sunderland og Wolves í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur komið víða við á ferlinum en leikur núna með utandeildarliði Hashtag United. Halford hefur tjáð sig um einhverfugreiningu sem hann fékk í ár, 38 ára að aldri. Hann fékk greininguna eftir að sonur hans var greindur með einhverfu. „Ég hef ekki sagt neinum í fótboltanum þetta en ég er á einhverfurófi,“ sagði Halford og viðurkenndi að hann hefði átt erfitt með að aðlagast þegar hann lék með Sunderland. „Mér fannst mjög erfitt að falla inn í nýjan hóp og breyta því hvernig ég lifði, hvar ég bjó, vera ekki með fjölskyldunni minni eða kærustunni á þeim tíma. Það var mjög, mjög erfitt. Ég átti erfitt með samskipti. Eftir æfingar vildi ég aldrei fara í matsalinn því ég vildi ekki vera í kringum fólk. Mér leið skringilega og vildi bara fara heim. Það var allt annað að vera inni á vellinum. Það var minn staður og ég get stjórnað mér þar. En mér fannst mjög erfitt að vera í litlum hópum á þessum tíma.“ Halford hefur alls leikið með sautján félögum á ferlinum. Auk Englands lék hann í Skotlandi og á Írlandi.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig Íslenski boltinn Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Enski boltinn Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Chelsea - Brighton 4-3 | Dramatískur markaleikur á brúnni Enski boltinn FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Íslenski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Enski boltinn Fleiri fréttir Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Chelsea - Brighton 4-3 | Dramatískur markaleikur á brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Sjá meira