Bíó og sjónvarp

Kepp­endur Squid Game vilja bætur vegna meiðsla

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Fyrsta þáttaröð Squid game fjallaði um 456 skuldsetta og örvæntingarfulla einstaklinga sem fengnir voru til að taka þátt í útgáfum af barnaleikjum, upp á líf og dauða.
Fyrsta þáttaröð Squid game fjallaði um 456 skuldsetta og örvæntingarfulla einstaklinga sem fengnir voru til að taka þátt í útgáfum af barnaleikjum, upp á líf og dauða.

Keppendur í raunveruleikaþáttum í anda Squid Game þáttanna vinsælu ætla sér að sækja skaðabætur vegna meiðsla sem þau hafa orðið fyrir við tökur þáttanna.

BBC hefur það eftir lögfræðingum nokkurra keppenda að þetta sé tilfellið. Einhverjir hafi þurft að þola ofkælingu og taugaskaða. 

Squid Game þættirnir kóresku slógu rækilega í gegn og urðu á 28 dögum vinsælustu þættir streymisrisans Netflix frá upphafi. Í leiknu þáttunum reyndu 456 keppendur  fyrir sér í ýmsum þrautum, sem voru dauðans alvara, þar til einn stóð uppi með peningaverðlaun. 

Svipuð er uppskriftin í raunveruleikaþáttunum og keppt er upp á það sem nemur tæpum 700 milljónum íslenskra króna. 

Í yfirlýsingu þáttanna segir að framleiðendur taki heilsu keppenda „mjög alvarlega“. Samkvæmt frétt BBC eiga keppendur að hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum, til dæmis hafi einhver „legið kaldur og hreyfingarlaus í nokkra klukkutíma á meðan tökum stóð“.

Haft er eftir lögfræðingi eins keppanda sem segir: „Keppendur bjuggust við því að taka þátt í enhverju skemmtilegu og þeir sem urðu fyrir meiðslum bjuggust ekki við því að kveljast líkt og raun ber vitni. Nú þurfa þau að glíma við meiðsli eftir að hafa verið skilin eftir í kvíðavaldandi aðstæðum í miklum kulda.“

Líklegt verður að teljast að framleiðendur þáttanna beri fyrir sig að þátttakendur hafi með áhættutöku sinni fyrirgert sér rétti til bóta, en það verður að koma í ljós síðar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.