Í tilkynningu segir að dagurinn í ár sé tileinkaður Loftslagsvegvísum atvinnulífsins sem hafi verið afhentir Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra á vormánuðum.
„Þar komu fram 332 tillögur að aðgerðum sem eiga að stuðla að auknum samdrætti í losun atvinnugreinanna. Tillögurnar og aðgerðir þeim tengdum eru til umfjöllunar þar sem ráðherrar og atvinnulíf kryfja framhaldið.
Dagskrá lýkur með hinum árlegu Umhverfisverðlaunum atvinnulífsins sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir.
Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SAF, Samorku, SFF, SFS, SI og SVÞ,“ segir í tilkynningunni.
Hægt er að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan.
Dagskrá
- Setning: Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Orkuframleiðsla og aðgengi að orku
- Kynning á stöðunni og umræður
- Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, stýrir umræðum
- Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
- Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar IS
- Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
- Auður Nanna Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar H2
Einföldun regluverks
- Kynning á stöðunni og umræður
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, stýrir umræðum
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair
- Álfheiður Ágústdóttir, forstjóri Elkem Ísland og leiðtogi vegvísis um kísiliðnað
- Aðalheiður Snæbjarnardóttir, forstöðumaður Sjálfbærni hjá Landsbankanum
Fjárhagslegir hvatar til fjárfestinga
- Kynning á stöðunni og umræður
- Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, stýrir umræðum
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármálaráðherra
- Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar
- Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
- Guðmundur Kristjánsson, forstjóri BRIM
Innviðauppbygging
- Kynning á stöðunni og umræður
- Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, stýrir umræðum
- Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
- Agla Huld Þórarinsdóttir, yfirmaður sjálfbærnimála Eimskips
- Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar og leiðtogi vegvísis um vegasamgöngur
- Svandís Hlín Karlsdóttir, framkvæmdastjóri viðskipta- og kerfisþróunar hjá Landsneti
Lokaerindi
- Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2023
- Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson afhendir verðlaun fyrir Umhverfisfyrirtæki ársins og Umhverfisframtak ársins 2023