Lagasetningar gegn almenningi, Réttlæti hins sterka Jörgen Ingimar Hansson skrifar 12. desember 2023 15:31 Lagasetningar gegn almenningi Sumar lagasetningar Alþingis eru, eftir því sem ég best get séð, beinlínis til þess fallnar að gefa hinum best megandi í þjóðfélaginu tækifæri til að taka í lurginn á einstaklingum meðal almennings. Fyrst má nefna málskostnaðartryggingu. Hefji félítill maður mál gegn öðrum getur hann lent í því þegar í upphafi máls að vera krafinn um tryggingu, sem getur numið milljónum króna, fyrir hugsanlegum málskostnaði tapi hann málinu. Hún liggur þá föst í dómnum þangað til hann er kveðinn upp, jafnvel einhverjum árum síðar. Setji hann ekki trygginguna er málinu sjálfkrafa vísað frá dómi. Skilgreiningin á félítill er hvort hann geti sýnt fram á að hann hafi fé til þess að greiða málskostnaðinn komi til hans. Upprunalega hugmyndin gæti hafa verið sú að tryggja að ekki væri unnt að lögsækja hinn fjárhagslega sterka af einhverjum annarlegum ástæðum. Ég held samt að ég geti fullyrt að dómari hafi aldrei dæmt samkvæmt henni. Einungis eftir því hvort hinn fjárhagslega veiki teldist borgunarmaður fyrir málskostnaðinum eða ekki. Samkvæmt lögum virðast hins vegar engar hömlur vera á málsóknum hins fjárhagslega sterka gegn hinum veika af hvaða toga sem er. Sem dæmi má nefna fréttir af málsókn Samherja gegn starfsmönnum Seðlabanka Íslands. Samkvæmt þeim hætti hann henni að lokum að því er virtist af eigin hvötum eftir einhverra ára þjark í réttarsölum ef ég man rétt. Sem annað sambærilegt dæmi má nefna svokallaða löggeymslu sem einnig felst í því að verða að setja tryggingu fyrir málskostnaði. Henni er unnt að beita gegn þeim sem hefur tapað máli í undirrétti og fengið á sig tilheyrandi málskostnað en áfrýjar til efra dómstigs. Setji hann ekki trygginguna fyrir málskostnaðinum er reyndar ekki beinlínis unnt stöðva rekstur málsins. Hins vegar er unnt að gera hann gjaldþrota samkvæmt þessum lögum á ódýran hátt og á stuttum tíma miðað við venjulega gjaldþrotskröfu. Alla vega er ekki augljóst hvernig hinn gjaldþrota einstaklingur eigi að halda málinu áfram við þær aðstæður. Þó hér séu aðeins tekin fyrir þessi mál eru sennilega mýmargar lagasetningar andstæðar almenningi á einn eða annan hátt. Má þar nefna að allur kostnaður sem greiddur er beint til dómstóla í dómsmáli er annaðhvort óháður stærð málsins eða með afgerandi afslætti fyrir hinn sterka. Þarna er ekki verið að tala um 5-10% eins og oftast er gert þegar verið er að bjóða hann heldur jafnvel 90-99%. Allt eru þetta að vísu lágar upphæðir (yfirleitt nokkrir tugir þúsunda) nema helst þær sem hinn fjárhagslega sterki fær afslátt af sem myndu nema milljónum króna. Stytt málsmeðferð Hindrun á því að unnt sé að draga fólk fyrir dómstóla af annarlegum ástæðum á örugglega rétt á sér. Með stefnu og greinargerð stefnda í upphafi máls eiga samkvæmt lögum megindrættir hvers máls að vera ljósir. Með þeirri viðbót að gerð yrði grein fyrir hvernig aðilar myndu haga málflutningi sínum í málinu gæti dómari þá þegar ákveðið að málinu yrði slitið væru yfirgnæfandi líkur á annarlegu ástæðum fyrir málsókninni. Þetta yrði að vera undantekningaratriði, einungis notað þegar dómari teldi augljóst að dómstóllinn væri misnotaður, vel útskýrt frá báðum hliðum í dómsforsendum, en myndi á hinn bóginn gilda alla en ekki bara félitla einungis vegna þess að þeir séu félitlir. Lagaskýringar Í þessu sambandi má nefna að lög eru í raun samin í þremur áföngum. Fyrst með því að fáir semji þau til framlagningar fyrir Alþingi. Það er oftast gert í ráðuneytunum, það er hjá framkvæmdavaldinu. Eftir afgreiðslu Alþingis tekur við túlkun laganna sem oft fer fram í svokölluðum lögskýringum sem til dæmis geta orðið til sem kennslubók um lögin í lögfræðideild(um) háskóla. Oftast er það góðra gjalda vert. Í sífellt flóknari heimi er hins vegar orðið varasamara að sá sem aðeins er með lögfræði sem bakgrunn geri það án stuðnings frá öðrum faggreinum. Sem dæmi má nefna að í lögskýringum að lögum um hlutafélög og einkahlutafélög virðast sömu lög gilda um stærstu alþjóðlegu fyrirtæki og pínulítil tveggja manna fyrirtæki sem báðir vinna í sem varð til þess í mínu máli að sá sem titlaður var framkvæmdastjóri var samkvæmt dómi talinn alvaldur í fyrirtækinu líkt og í stórfyrirtækinu nema málið hefði verið tekið fyrir á formlegum stjórnarfundi boðuðum með löglegum fyrirvara og mátti meira að segja stinga fjármunum þess í eigin vasa. Hæstiréttur Íslands taldi vel að merkja túlkunina hárrétta. Þarna er niðurstaðan sú að Alþingi hefur búið til gildru fyrir þá sem stofna lítil fyrirtæki. Ég legg til að einhver, til dæmis fulltrúi Umboðsmanns Alþingis, yfirfari öll lög sem eru í meðferð Alþingis á hverjum tíma auk lögskýringa með tilliti til hagsmuna almennings og smárra fyrirtækja. Alþingi virðist leita mjög til svokallaðra hagsmunaaðila til aðstoðar við að koma á lögum sem passi fyrir „alla“ en reynist oft bara henta hagsmunaaðilunum þegar upp er staðið. Athuga þarf að fulltrúinn mun þurfa að kalla sér til aðstoðar aðila úr öðrum faggreinum samborið ofangreint. Rík ástæða er til að ýmis eldri lög og lögskýringar fengju sömu meðferð. Horfa þarf til framtíðar þegar lög eru sett Núverandi Lög um meðferð einkamála eru frá árinu 1991, það er í upphafi tölvualdar eins og við þekkjum hana. Þau voru hins vegar afgreidd frá Alþingi eins og árið 1970 væri enn við lýði og engin tölvuöld að hefjast. Samt var þá tiltölulega auðvelt að sjá hvað væri í vændum. Þau lög voru með öðrum orðum úrelt þegar þau voru gefin út og hafa verið að úreldast hraðar og hraðar síðan. Það má ekki gerast aftur. Núna er hraði breytinga margfalt meiri. Það sem gerðist 1970 á kannski 10 árum gerist nú væntanlega á einu ári. Hætt er við því að innan allt of margra ára muni álíka miklar breytingar gerast á einum mánuði. Þegar næst verða afgreidd Lög um meðferð einkamála, sem verður að gera sem fyrst, verður að reyna að horfa eitthvað fram í tímann en ekki til baka við samningu laganna annars verðum við bara áfram í sömu súpunni og við erum nú. Þetta nægir að vísu ekki. Dómskerfið þarf einnig að þróa í takt við tæknina og þjóðfélagsbreytingar á hverjum tíma. Það verður að vera til einhver aðili, til dæmis nefnd dómara, lögmanna, framtíðarfræðinga og fleiri sérfræðinga sem ætlað er að fylgjast með þróun þjóðfélagsins og koma á framfæri breytingum á gildi ákveðinna sönnunargagna og dómsmeðferða sem svo þyrfti að öðlast víðtækt samþykki innan dómarastéttarinnar og einnig Umboðsmanns Alþingis og væntanlega að lokum blessunar Alþingis. Á þann hátt væri unnt að aðlaga lögin betur að þjóðfélagi hvers tíma. Lokaorð Ofangreind málefni eru nánar útskýrð í bókinni Réttlæti hins sterka, Ádeila á dómskerfið og Alþingi. Í þessari grein hef ég eins og í undanfarandi grein (birt 4. desember síðastliðinn) reynt að leggja til nokkrar einfaldar en mikilvægar umbætur í dómskerfinu og vara við hroðvirkni í meðförum Alþingis. Því miður tel ég samt sem áður að þær yrðu aðeins áfangi að því að gera dómskerfi landsins í þannig stand að almenningi sé í raun fært að taka þátt í því þannig að hann eigi möguleika eins og stundum er sagt. Höfundur er rekstrarverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jörgen Ingimar Hansson Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun