Einhver snjókoma suðvestantil og kólnandi veður Atli Ísleifsson skrifar 28. desember 2023 07:08 Á morgun er útlit fyrir hægari vind og áfram dálitlum éljum við norður- og austurströndina en snjókomu syðst. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustankalda eða strekkingi og lítilsháttar éljum á víð og dreif norðan- og austanlands en dálítilli snjókomu af og til suðvestantil.
Á vef Veðurstofunnar segir að það sé heldur kólnandi veður og að síðdegis megi búast við frosti á bilinu einu stigi syðst að tólf stigum í innsveitum fyrir norðan. „Á morgun er útlit fyrir hægari vind og áfram dálítil él við norður- og austurströndina en snjókoma syðst. Þá birtir til um landið vestanvert. Enn herðir á frosti, frost allt að 17 stigum norðan heiða,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Skýjað að mestu og lítilsháttar él með norðurströndinni, en snjókoma syðst. Frost frá 1 stigi syðst, niður í 17 stiga frost í innsveitum fyrir norðan. Á laugardag: Austan 5-13, en hægari um landið austanvert. Dálítil snjókoma á víð og dreif, en yfirleitt þurrt suðvestanlands. Frost 0 til 10 stig, mildast syðst. Á sunnudag (gamlársdagur): Suðaustan og austan 5-13 og snjókoma. Hægari vindur sunnan- og austanlands og lítilsháttar él við ströndina. Hiti breytist lítið. Á mánudag (nýársdagur): Norðaustan og austan 5-13 og víða él, en snjókoma um landið vestanvert. Áfram frost um allt land. Á þriðjudag og miðvikudag: Norðlæg átt og dálítil él á Norður- og Austurlandi, en snjókoma með köflum suðvestantil. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Sjá meira