Víða hvassviðri á fyrsta degi ársins Atli Ísleifsson skrifar 1. janúar 2024 08:40 Seint í nótt mun draga úr vindi. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustan tíu til átján metrum á sekúndu og rigningu eða slyddu með köflum á þessum fyrsta degi ársins.
Hvassast verður suðaustanlands og á Vestfjörðum. Gul viðvörun er í gildi á Suðausturlandi vegna norðaustan hvassviðris eða storms til hádegis. Er talið að vindur gæti náð 35 metrum á sekúndum í hviðum, en hvassast er í Öræfum og má reikna með erfiðum akstursskilyrðum víða. Á vef Veðurstofunnar segir að austan- og suðaustantil verði úrkoma þó samfelldari, en hiti verður á bilinu núll til sex stig. „Víða verður snjókoma inntil landsins og til fjalla getur færð spillst með stuttum fyrirvara. Seint í nótt dregur úr vindi, suðaustan 3-10 m/s á morgun með skúrum, en úrkomulítið á norðvestan- og vestanverðu landinu og birtir til þar er líður á daginn. Eftir frostatíð þá hlýnar á landinu á nýju ári, hiti yfirleitt 0 til 6 stig fram í miðja viku,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðaustan 8-13 m/s og dálítil rigning eða slydda suðaustanlands, annars hægari og úrkomulítið. Frost 0 til 5 stig, en hiti víða 0 til 4 stig við sjávarsíðuna. Á fimmtudag: Norðaustan og austan 5-10. Bjart með köflum sunnan- og vestanlands, en él við austurströndina. Frost 0 til 10 stig. Á föstudag: Suðlæg átt með slyddu eða snjókomu og hita kringum frostmark vestantil, en þurrt og áfram kalt um landið austanvert. Á laugardag: Sunnanátt og dálítil rigning eða snjókoma, en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hlýnandi veður. Á sunnudag: Sunnanátt, skýjað og milt, en bjartviðri norðaustanlands.
Veður Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira