Lífið

Innanhússhönnuður selur perlu í Garða­bæ

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Fallegir innanstokksmunir og hönnunarvörur einkenna heimili Sólveigar Andreu, sem nú er komið á sölu.
Fallegir innanstokksmunir og hönnunarvörur einkenna heimili Sólveigar Andreu, sem nú er komið á sölu. Vísir

Innanhúsarkitektinn Sólveig Andrea Jónsdóttir og eiginmaður hennar, Hilm­ir Víg­lunds­son, hafa sett glæsilegt endaraðhús sitt í Garðabæ á sölu. 

Um er að ræða bjart og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Húsið, sem er 231 fermetrar að stærð er á skjólsælum stað í Akrahverfinu í Garðabæ. 

Loftljós frá Flos setur mikinn svip á rýmið. Vísir

Þrjú til fjögur svefnherbergi eru í húsinu, stofa og eldhús í opnu rými,  fataherbergi, sjónvarpsherbergi og tvö baðherbergi. 

Frame sjónvarp sem lítur út eins og málverk fellur vel inn í myndavegg í stofunni.Vísir
Sólveig Andrea er einn færasti innanhússhönnuður landsins og ber heimili hennar skýr merki um það. Vísir
Við hlið svefnherbergisins er rúmgott fataherbergi. Vísir
Einstaklega hlýlegt svefnherbergi þar sem veggir og loft eru málaðir í sama gráa litnum. Vísir

Í húsinu eru tvennar svalir, afgirtur garður og rúmgott bílastæði í innkeyrslu með hitalögn. Gólfhiti er á neðri hæð hússins og votrýmum efri hæðar. 

Húsið er í Akrahverfi í Garðabæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla sem og einnig matvöruverslanir, heilsugæslu og fleira. Vísir

Eignin verður sýnd á opnu húsi í dag, 5. febrúar, á milli klukkan 17 og 17:30. Nánari upplýsingar má finna á Fasteignavef Vísis. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.