Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég vakna yfirleitt frekar snemma, oftast á milli fimm og sex og fær mér kaffibolla á meðan ég fylgist með snúningnum á flugvélunum okkar. Það er einhver innbyggð klukka sem vekur mig til að fylgjast umferðinni til og frá Keflavík á morgnana.”
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Ég fer yfir helstu fréttamiðlana og plana daginn áður en aðrir fjölskyldumeðlimir koma sér á fætur. Ég hlusta líka reglulega á hlaðvörp og þar er Beint í bílinn með Sveppa og Pétri Jóhanni ofarlega á lista. Það koma fáir mér í betra skap en þeir tveir.“
Á skalanum 1-10 hversu duglegur ertu í eldamennskunni?
„Ég viðurkenni það að mér finnst alveg ótrúlega gaman að elda góðan mat og það er einmitt í eldhúsinu sem ég fæ mitt „check out“. Þar næ ég pásu frá vinnu, nýt mín og svo skemmir ekki þegar að afraksturinn skilar sér í góðum mat og brosmildum og ánægðum fjölskyldumeðlimum.
Spurningin er góð og auðveld í svörum, ég tel mig verulega duglegan í eldhúsinu og ætla að gefa mér einkunnina 8 þar en spurningin spurði ekki um gæði matarins en þar er ég ekki alveg jafn kokhraustur og skelli kannski í góða sjöu.
Skal alveg viðurkenna að virkir dagar er yfirleitt eitthvað sem er fljótlegt að elda en þó gott og vonandi smá hollt.
Um helgar finnst mér fátt skemmtilegra en að byrja snemma að undirbúa kvöldmatinn en þar sem ég er algjör áhugakokkur og kann lítið fyrir mér í eldhúsinu annað að mér finnst gaman að borða góðan mat þá er gott að gefa sér tíma og njóta sín á meðan með góðu hráefni….
Það sem hefur heppnast best á mínu heimili er hægeldað nautakjöt en skemmtilegasta eldamennskan er samt alltaf föstudagspizzan en heimagerð pizza í lok vikunnar er eitthvað svo rómantískt.
Eftir uppvaskið er það svo beint að horfa á Gísla Martein.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Frá stofnun PLAY hefur vöxturinn verið mjög mikill en þetta árið mun fókusinn fara á verkefni sem við köllum Operation Excellence. Þar erum við að horfa í bestun á ferlum í öllum okkar deildum innan flugrekstrarins. Þar er hægt að taka dæmi um stundvísi og áreiðanleika, öryggismál, hvernig við högum undirbúningi flugs, þar með talið flugáætlunargerð, hvernig við vinnum úr óvæntum uppákomum eins og þegar að flug raskast vegna veðurs eða annara óviðráðanlegra aðstæðna eins og við erum svo vön að sjá hér á landi. Síðast en ekki síst hvernig við tryggjum jafnvægi milli einkalífs og vinnu fyrir alla okkar starfsmenn, það skiptir okkur miklu máli.
Ég er svo heppinn að vinna með frábæru fólki alla daga sem leggur allan sinn metnað í að dagurinn í dag verði ennþá betri en dagurinn í gær og vill alltaf gera betur, hjálpa hvert öðru að ná markmiðum sem sett eru og vinna vel saman. Þetta á við um alla sem koma að PLAY, öll sem eitt!“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Eðli málsins samkvæmt þá er flugrekstur oft þannig að maður veit lítið hvað dagurinn ber í skauti sér. Það er víst þannig að við sem erum í flugbransanum höfum ótrúlega gaman af vinnunni okkar vegna þess að enginn dagur er eins, það er alltaf eitthvað nýtt sem kemur inn á borðið hjá okkur. Nýr dagur, nýjar áskoranir.
Það er samt auðvitað ákveðið mynstur í dögunum. Eftir yfirferð og staðfestingu á að allar okkar vélar séu á áætlun og enginn farþegi orðið fyrir röskun þá fer ég yfirleitt í að svara tölvupóstum áður en fundarhöld dagsins hefjast.
Það er samt mikilvægt að passa upp á það í gegnum daginn að hafa smá gaman líka, sprella aðeins saman með góðum pabbabröndurum.
Þar sem ég hef ótrúlega gaman að því að fljúga þá reyni ég að skipuleggja ca einn til tvo daga í mánuði þar sem ég flýg. Það er fátt skemmtilegra en að taka einn Tene dag, komast í 38 þúsund fetin og fljúga með ánægða farþega á leið í sólarfrí. Það er víst þannig að þegar að ég fer í loftið þá segi ég aldrei að ég sé að leiðinni í vinnuna heldur er ég að fara að fljúga. Það eru gríðarleg forréttindi.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Það er ótrúlega misjafnt og fer eftir hvernig dagurinn hefur þróast en alla jafna þá finnst mér rosalega gott að fara snemma að sofa en eðli málsins samkvæmt þá koma dagar þar sem vinnan fylgir manni inni í kvöldið og nóttina.“