Flugeldar og fagnaðarlæti eftir fyrsta sigur Hamars Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 10. mars 2024 08:01 Stuðningsmenn Hamars fögnuðu fyrsta sigri tímabilsins vel og innilega. Vísir/Stöð 2 Sport Hamarsmenn unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Subway-deild karla í körfubolta síðastliðinn fimmtudag. Stuðningsmenn Hamars voru því í aðalhlutverki í síðasta þætti Körfuboltakvölds.
Fyrsti sigur Hamars á tímabilinu kom gegn Breiðablik í Frystikistunni í Hveragerði síðastliðinn fimmtudag þegar liðið vann 13 stiga sigur, 104-91. Þessi fyrsti sigur kom í 19. umferð deildarkeppninnar, fjórðu síðustu umferð tímabilsins. Það sem meira er að þetta var fyrsti sigur Hamars í efstu deild frá árinu 2011. Liðið var án sigurs í efstu deild í 12 ár, 11 mánuði og 26 daga. Þrátt fyrir slakt gengi á tímabilinu hefur stuðningssveit Hamars staðið sína plikt í allan vetur. Meðlimir sveitarinnar fóru því alla leið í fagnaðarlátunum þegar sigurinn var í höfn og sprengdu meðal annars flugelda fyrir utan íþróttahúsið í Hveragerði. Virtist þar engu máli skipta þó lögreglubíll væri í næsta nágrenni og að óheimilt sé að sprengja flugelda á þessum tíma árs. Klippa: Körfuboltakvöld: Hamar vann leik Í lok umræðunnar um sigur Hamars fóru drengirnir í Körfuboltakvöldi yfir ýmislegt sem átti við í heiminum síðast þegar Hamar vann leik í efstu deild. Í því samhengi má meðal annars nefna að síðast þegar Hamar vann leik í efstu deild hafði Ísland aldrei farið á Eurobasket, LeBron James hafði aldrei orðið meistari í NBA og nýjasti snjallsíminn var iPhone 4, en innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Körfuboltakvöld Subway-deild karla Hamar Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Sjá meira