Svipað veður en bætir í vind með páskahelginni Ólafur Björn Sverrisson skrifar 24. mars 2024 08:14 Fínasta veður hefur verið á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Hitinn þó ekki sérlega mikill. vísir/vilhelm Áfram verður svipað veður og verið hefur verið í dymbilvikunni, en bætir líklega í vind þegar líður að páskahelginni.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofunni. „Yfir Norðaustur-Grænlandi er hæð og frá henni hæðarhryggur yfir landinu. Fremur hægar norðaustanáttir og dálítil él á víð og dreif, en léttir til suðvestanlands síðdegis,“ segir í hugleiðingunum Í dag er búist við austan og norðaustan 5-13 m/s og skýjað með köflum, en dálítil él á víð og dreif. Léttir til suðvestanlands eftir hádegi. Hæg norðaustlæg eða breytileg átt og dálítil él á víð og dreif á morgun, en léttskýjað suðvestantil. Frost víða 0 til 8 stig, en frostlaust sunnantil yfir daginn. Á höfuðborgarsvæði verður austan 3-10 m/s og stöku él, en léttir til uppúr hádegi. Hæg austlæg átt og léttskýjað á morgun. Hiti 0 til 5 stig að deginum Veðurhorfur næstu daga Á mánudag: Norðan 8-15 m/s austanlands framan af degi, en annars norðaustlæg átt, 3-10 m/s. Dálítil él um landið norðaustanvert, en lengst af þurrt og bjart annars staðar. Frost víða 0 til 12 stig, en frostlaust við suðurströndina.Á þriðjudag:Austan og norðaustan 5-13 m/s og dálítil él, en yfirleitt úrkomulaust á Vesturlandi. Talsvert frost um land allt.Á miðvikudag, fimmtudag, föstudag og laugardag:Norðaustankaldi eða -strekkingur og víða dálítil él, en bjartviðri suðvestantil og áfram svalt í veðri.
Veður Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira