„Upp með hökuna og áfram gakk“ Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 2. apríl 2024 21:13 Félagarnir Eiríkur og Sigurður fögnuðu tímamótum í dag þegar frystitogarinn Tómas Þorvaldsson lagðist að bryggju í Grindavík í fyrsta sinn í fimm mánuði. Vísir/Margrét Björk Skipstjóri fyrsta frystitogarans sem landaði í Grindavík í morgun í fyrsta sinn í fimm mánuði segir blendnar tilfinningar fylgja tímamótunum. Hann fékk ryk í augun þegar skipið sigldi að landi. Útgerðarstjóri segir tilfinninguna gríðarlega góða og gleðilegt að líf sé að færast í bæinn.
Frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK10 sem segja má með sanni að sé flaggskip Grindvíkinga kom til löndunar í Grindavík í morgun í blíðskaparveðri. „Þetta er fyrsta togaralöndunin frá því að það urðu hérna smá læti 10. nóvember,“ segir Eiríkur Óli Dagbjartsson, útgerðarstjóri hjá Þorbirni hf. Aflinn var um 750 tonn upp úr sjó, eða 500 tonn af afurðum, ýmist þorsk, ýsu, ufsa eða karfa. Verðmæti túrsins eru tæplega 300 milljónir. Gert er ráð fyrir að löndunin taki tvo daga. Eiríkur segir fyllsta öryggis gætt og grannt sé fylgst með veðurspám og hugsanlegri gasmengun frá eldgosinu. Þá segist hann skynja bjartsýni meðal Grindvíkinga vegna þessara tímamóta og vonast eftir bjartari tíð eftir allt sem á undan er gengið. „Þetta er að gleðja marga, heyrist mér. Það færist svolítið meira líf í bæinn, það er ýmislegt í gangi. Ein frystitogaralöndun, þetta skiptir máli. Við erum ánægðir með það.“ „Við erum alltaf að koma heim“ Eiríkur og eiginkona hans, Sólveig, sváfu um páskana í fyrsta sinn heima hjá sér í Grindavík frá því að bærinn var rýmdur vegna jarðhræringa þann 10. nóvember. Hann segir það hafa verið algjörlega dásamlegt og að nóttunum muni vonandi fjölga. Annars sé hljóðið í Grindvíkingum afskaplega misjafnt þessa dagana. „Þú getur fundið alla flóruna. Margir eru því miður farnir og koma ekkert aftur, en svo er alveg slatti af svona þverhausum eins og ég og konan mín og mjög margir aðrir, sem bara ætla sér að koma aftur. Það er einfaldlega þannig að það er ekkert sem toppar þennan bæ fyrir okkur sem þekkjum ekkert annað. Svo við erum alltaf að koma heim.“ Yndisleg tilfinning en skrítin að koma heim Sigurður Jónsson, skipstjóri á Tómasi Þorvaldssyni var nokkuð sáttur með túrinn en blendnar tilfinningar fylgdu þó heimkomunni. „Þetta var fínasti túr. Bara hefðbundinn verðtíðartúr. Maður vill alltaf fá meiri fisk, það er aldrei nóg, en bara fínt. Gott að koma hingað líka.“ Já, var ekki gott að koma heim? „Æðislegt. Það var bara þannig. Skrítið samt. Ég fékk alveg ryk í augun, þetta er ekkert einfalt.“ Aukin vöktun og gæsla er viðhöfð við höfnina í Grindavík þessa dagana vegna aðstæðna. Vísir/Margrét Björk Sigurður segir tilfinninguna hafa verið afar sérstaka að sigla inn að bænum og horfa á eldgos í nokkurra kílómetra fjarlægð. „En á sama tíma var magnað að horfa á þessa varnargarða sem eru búnir að bjarga okkur, það er bara svoleiðis, þeir eru búnir að bjarga okkur. Þetta fólk sem er búið að vera að sinna þessu og gera þetta eiga heiður skilinn.“ Eiríkur tekur undir orð Sigurðar. Það er algjört þrekvirki sem þessir gröfukallar og jarðýtumenn eru búnir að vinna hérna undanfarnar vikur og mánuði. Menn og konur. Þetta eru jaxlar. Með hækkandi sól og vori í lofti vonast þeir til að á næstu mánuðum fari að færast enn meira líf í bæinn. „Við fundum það áðan þegar við sátum saman á Vörinni í hádeginu, þá kom þetta hugarfar „upp með hökuna, áfram gakk og bros á vör,“ segir Sigurður. Þeir félagar eru sammála um að Grindvíska samfélagið sé einstakt og vilja ekkert heitar en að snúa aftur heim. „Þetta er allt háð náttúrunni og hennar duttlingum. Við vonum innilega að hún slaki þannig á að við eigum afturkvæmt. Vegna þess að þetta er bara dásamlegur staður. Ég vona að öllum finnist það, sama hvar þeir eiga heima, en Grindavík, grindvíkingar, þetta er alveg magnað,“ segir Eiríkur Óli að lokum.
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Náttúruhamfarir Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira