Liverpool mátti þola slæmt tap, 0-3 á heimavelli, gegn Atalanta í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Liverpool byrjaði á afturfótunum og Caomhin Kelleher kom þeim til bjargar með frábærri markvörslu strax á 3. mínútu.
Liverpool hélt samt vel í boltann í fyrri hálfleik og skapaði nokkur góð færi. Harvey Elliott komst næst því að skora en skot hans hafnaði í slánni.
Atalanta spilaði þétta vörn og reiddi sig á skyndisóknir. Það skilaði sér þegar þeir tóku forystuna á 38. mínútu.Þá keyrðu gestirnir upp hægri vænginn og sendu boltann fyrir markið, beint í hlaupalínu framherjans Gianluca Scamacca sem kom boltanum í netið.
Liverpool var svo nálægt því að gefa vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks, en eftir myndbandsskoðun var aukaspyrna dæmd, eftir að boltinn fór í hönd Wataru Endo. Sú spyrna fór langt yfir markið en skömmu síðar skoruðu gestirnir annað mark.
Aftur var Gianluca Scamacca á ferðinni, í þetta skiptið fékk hann stoðsendingu frá Charles de Ketelaere.
Þrátt fyrir breytingar á liði og leikskipulagi gekk Liverpool illa að skora. Þeir komu boltanum reyndar í netið á 79. mínútu en Mohamed Salah var dæmdur rangstæður og markið ógilt.
Heimamenn sendu of marga menn fram og fengu þriðja markið á sig á 84. mínútu. Mario Pasalic fylgdi þar eftir skoti Ederson og setti boltann í netið.
Atalanta er því í ansi góðri stöðu fyrir næsta leik liðanna sem fer fram í Bergamo á Ítalíu næsta fimmtudag.