Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 16. apríl 2024 19:41 Sindri Ploder er búinn að skapa sér nafn í listasenunni með sterkum höfundareinkennum. Í Gallery Port er einkasýning Sindra. Vísir/Arnar Árni Már Þ. Viðarsson, eigandi Gallery Ports segist heltekinn af verkum unga listamannsins Sindra Ploder en hann hefur slegið í gegn með skrímslaverkum sínum sem nú prýða veggi sýningarrýmisins.
Sindri hefur vakið athygli fyrir grípandi teikningar af skrímslum í öllum regnbogans litum en hann var í fyrra valinn listamaður hátíðarinnar Listar án landamæra. Nú er hann mættur með einkasýningu í Gallery Port. Á laugardag klukkan tvö mun listfræðingur fjalla um verkin hans og Íris Stefanía Skúladóttir, listakona, mun fjalla um sýninguna út frá sjónarhóli listar án landamæra. Sindri og Íris Stefanía hafa unnið saman í fjölmörg ár eða allt frá því Íris sá fyrst verk eftir hann. „Ég verð bara ástfangin og þá hefst vegferð okkar saman og það er þarna vorið 2016, þá fæ ég Sindra með í bæði verkefni á Hönnunarmars og svo í samstarfi við Gallery Port, þegar það var á Laugaveginum.“ Þau Sindri og Íris Stefanía eru samstarfsmenn til margra ára en þau eru líka nánir vinir.Vísir/Arnar Nú er Sindri búinn að skapa sér nafn í senunni. Íris segir markmið Listar án landamæra vera að upphefja list fólks með fötlun og koma listamönnunum á kortið. „Það er það sem er að gerast hjá Sindra núna. Gallery Port hafði bara samband við hann persónulega og vildi fá að sýna hans list þannig að hann er núna orðinn sjálfstætt starfandi listamaður en mér finnst að öll heimili ætti að eiga Sindra, það er ekki spurning!“ Árni, sem rekur umrætt listagallerí er alveg heillaður af listfengi Sindra. Árni hefur mikla trú á verkum Sindra en á laugardag verður dagskrá í tengslum við sýninguna. Árni segir að þeir sem séu áhugasamir um verkin geti fengið upplýsingar um verð hjá galleríinu.Vísir/Arnar „Þetta eru náttúrulega bara geðveik verk. Ég og konan mín erum að kaupa seinna verkið okkar eftir hann á einu ári. Við byrjuðum að vinna með List án landamæra fyrir mörgum árum síðan en svo sáum við sýningu á þeirra vegum á Rauðarárstíg og við konan ákváðum að kaupa verk. Síðan þá höfum við bara verið heltekin. Okkur finnst þetta bara fáránlega gott.“
Menning Myndlist Sýningar á Íslandi Tengdar fréttir KÚNST: „Þessi stöðuga þörf til að gera eitthvað hefur skilað mér hvað mestum árangri“ Listamaðurinn Árni Már Erlingsson rekur Gallery Port á Laugavegi 32 og er með marga bolta á lofti. Hann er gestur í nýjasta þætti af KÚNST sem er að finna neðar í pistlinum. 29. mars 2022 07:01 „Innblásturinn kemur bara af öllu sem við gerum“ Listamaðurinn Árni Már Erlingsson rekur Gallery Port á Laugavegi 32 en galleríið opnaði fyrst dyrnar fyrir um sex árum síðan. Árni Már er gestur í nýjasta þætti af KÚNST sem er að finna hér: 2. apríl 2022 07:01 Mest lesið Fall Vals í Afríku ætlar að reynast dýrkeypt Lífið Enn ólgar Ungfrú Ísland: „Ekkert til sem heitir ósanngjarn samningur ef þú skrifar undir hann“ Lífið Kaleo efnir til tónleikaveislu á Þingvöllum í júní Lífið Ágúst tekur við brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Eyjum Lífið Seldu skuldlaust hótel og fóru að leika sér Lífið Lætur skemmdaverk á vegglistinni ekki stöðva sig og heldur út Lífið „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Menning Baldur og Einar komnir með hnausþykkt hár eftir hárígræðsluna Lífið Engdust um af sársauka í túrverkjaherminum Lífið Aðalsteinn Lúther: „Þetta er ekki einhver trúarofsi tengdur guðfræðinámi“ Lífið Fleiri fréttir „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla „Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Andrew á Louvre Kinký bangsar og leðurklæddir kroppar „Ósmekkleg“ meðferð á eldri leikurum og álagið keyrt upp Forsetinn, fjölmiðlaskvísur og kempur í Borgarnesinu Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið „Ný sýn, nýr heimur“ Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Alaska og Birnir sigursæl Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Sjá meira
KÚNST: „Þessi stöðuga þörf til að gera eitthvað hefur skilað mér hvað mestum árangri“ Listamaðurinn Árni Már Erlingsson rekur Gallery Port á Laugavegi 32 og er með marga bolta á lofti. Hann er gestur í nýjasta þætti af KÚNST sem er að finna neðar í pistlinum. 29. mars 2022 07:01
„Innblásturinn kemur bara af öllu sem við gerum“ Listamaðurinn Árni Már Erlingsson rekur Gallery Port á Laugavegi 32 en galleríið opnaði fyrst dyrnar fyrir um sex árum síðan. Árni Már er gestur í nýjasta þætti af KÚNST sem er að finna hér: 2. apríl 2022 07:01
Enn ólgar Ungfrú Ísland: „Ekkert til sem heitir ósanngjarn samningur ef þú skrifar undir hann“ Lífið
Enn ólgar Ungfrú Ísland: „Ekkert til sem heitir ósanngjarn samningur ef þú skrifar undir hann“ Lífið