Lífið

Stefnir Megan Thee Stallion fyrir meint á­reiti á vinnu­stað

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Megan Thee Stallion er sögð afar óþægileg í samvinnu, í hið minnsta af tökumanninum.
Megan Thee Stallion er sögð afar óþægileg í samvinnu, í hið minnsta af tökumanninum. EPA-EFE/SARAH YENESEL

Fyrrverandi tökumaður sem starfaði fyrir rapparann Megan Thee Stallion hefur stefnt rapparanum og framleiðslufyrirtæki hennar fyrir meinta áreitni á vinnustað. Þá segir í stefnu hans að hún hafi stuðlað að eitraðri vinnustaðamenningu.

Í umfjöllun Entertainment Weekly kemur fram að tökumaðurinn, Emilio Garcia, haldi því fram að rapparinn hafi meðal annars fitusmánað hann og stundað kynlíf í bíl þar sem Garcia var farþegi. Þá telur hann til tug lögbrota sem framin hafi verið og segir að hann eigi inni ógreidd laun hjá fyrirtæki rapparans.

Tökumaðurinn var ráðinn til starfa í júlí 2018 og heldur því fram að hann hafi verið ráðinn sem sjálfstæður verktaki fyrir mistök. Því hafi hann ekki átt neinna réttinda að gæta og aldrei fengið laun í samræmi vð vinnuframlag sitt.

Haft er eftir Garcia í frétt miðilsins að honum hafi liðið illa að vinna fyrir rapparann. Atvikið þar sem hún hafi stundað kynlíf í bíl sem hann var farþegi í hafi átt sér stað á Ibiza í júní árið 2022. Garcia hafi verið þar í bílnum sem var á ferð ásamt rapparanum og tveimur vinkonum hennar. Hann lýsir því að hafa upplifað sig valdalausan í þessum aðstæðum, bæði hafi hann ekki getað komið sér úr þeim og þá hafi hann verið staddur í útlöndum og ekki vitað hvert hann gæti farið.

Fram kemur að ekki sé ljóst hvort rapparinn hafi vitað af því að tökumaðurinn væri í bílnum eða ekki. Miðillinn hefur eftir lögmanni rapparans að stefnunni verði mætt af hörku. Hún sé einungis til þess fallin að niðurlægja skjólstæðing hans og féflétta hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.