Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Smári Jökull Jónsson skrifar 3. maí 2024 19:01 Sveindís Jane kom inn af bekknum hjá Wolfsburg í dag. Vísir/Getty Sveindís Jane Jónsdóttir sneri aftur í leikmannahóp Wolfsburg í dag eftir meiðslin sem hún varð fyrir í landsleik gegn Þjóðverjum fyrir tæpum mánuði síðan.
Sveindís Jane kom inn sem varamaður í 5-1 sigri Wolfsburg í dag gegn Köln en náði þó ekki að vera á meðal markaskorara heimaliðsins. Sveindís Jane kom inn á 58. mínútu þegar staðan var 4-1 en Wolfsburg bætti við einu marki eftir að Sveindís kom af bekknum. Þetta er fyrsti leikur Sveindísar Jane síðan hún meiddist í landsleik Íslands og Þýskalands í byrjun apríl. Tvö liðbönd í öxl Sveindísar rifnuðu eftir fólskubrot leikmanns þýska liðsins. Endurkoma Sveindísar Jane eru einkar góðar fréttir fyrir íslenska landsliðið sem mætir Austurríki í tvígang í mikilvægum leikjum um næstu mánaðamót. Wolfsburg er áfram í öðru sæti deildarinnar eftir sigurinn en Bayern Munchen, sem Glódís Perla Viggósdóttir og Cecelía Rán Rúnarsdóttir leika með, er í efsta sæti og á þýska titilinn vísan. Bayern getur tryggt sér tititlinn með sigri á Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur og liðsfélögum hennar í Leverkusen á morgun. Karólína Lea er einmitt í láni hjá Leverkusen frá Bayern Munchen.
Þýski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Fleiri fréttir Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Sjá meira