Tveimur leikjum frá ódauðleika Valur Páll Eiríksson skrifar 22. maí 2024 16:31 Alonso er spenntur fyrir leik kvöldsins. Getty Bayer Leverkusen er tveimur leikjum frá ótrúlegu taplausu og þriggja titla tímabili. Fyrri hraðahindrunin er úrslitaleikur Evrópudeildarinnar við Atalanta í kvöld.
Spánverjinn Xabi Alonso hefur stýrt Leverkusen til magnaðs árangurs á yfirstandandi leiktíð. Félagið vann sinn fyrsta Þýskalandsmeistaratitil í sögunni og fór taplaust í gegnum deildarkeppnina. Úrslitaleikur Leverkusen og Atalanta er klukkan 19:00 í kvöld. Hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Það sem meira er hefur liðið ekki tapað einum einasta fótboltaleik, hvort sem er í þýska bikarnum eða Evrópudeildinni. Áður en kemur að bikarúrslitum við 2. deildarlið Kaiserslautern um helgina er það úrslitaleikur Evrópudeildarinnar við sterkt lið Atalanta frá Ítalíu í kvöld. Klippa: Xabi Alonso situr fyrir svörum fyrir úrslitaleikinn „Það er mikil spenna, en starfið mitt er bara fyrir leik,“ sagði Alonso á blaðamannfundi í gær fyrir leik kvöldsins. „Þegar boltinn fer að rúlla eru það bara leikmennirnir. Við höfum verið að búa okkur undir svona augnablik í allan vetur, það er ekki bara tveggja daga dæmi. Sem betur fer er ég með frábært lið,“ „Leikmennirnir eru vel undirbúnir, við höfum sýnt það í vetur og þessi leikur verður ekkert öðruvísi. Við berum mikla virðingu fyrir Atalanta en við erum fullir sjálfstrausts,“ segir Alonso.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Handbolti „Sá sem lak þessu er skíthæll“ Körfubolti Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Handbolti Alfreð hættur: „Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og minni fjölskyldu“ Fótbolti Vann þrátt fyrir að vera búin að gera í brækurnar Sport Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Handbolti Taugakerfi Sóleyjar í verkfall eftir HM og fékk hún yfir 39 stiga hita Sport Gagnrýnir hómófóbísk ummæli pabbans um Ralf Schumacher Formúla 1 Leið Íslands á HM skýrari: Í þriðja flokki og fá þrjá mótherja Fótbolti Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Enski boltinn Fleiri fréttir Alexia Putellas með sitt tvö hundruðasta mark fyrir Barcelona Nýr Etihad leikvangur hinum megin við Atlantshafið Guardiola samdi til ársins 2027 Segja að Haaland og félagar fái gjafapakka frá FIFA Sædís og félagar fyrstar til að stoppa Bæjara Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Danir vilja halda úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Alfreð hættur: „Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og minni fjölskyldu“ Kósovó áfrýjar og Svíar bíða spenntir: „Barátta gegn rasisma“ Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Leið Íslands á HM skýrari: Í þriðja flokki og fá þrjá mótherja UEFA viðurkennir mistök í myndbandsdómgælu í Þjóðadeildinni Systur sömdu á sama tíma Amanda lagði upp mark í Meistaradeildinni Svíar tapa á því að Rúmenum var dæmdur sigur á móti Kósóvó Messi kominn í frí fram í febrúar Fær ekki að eyða í leikmenn í janúar Katrín áfram í Kópavogi Liverpool og Newcastle berjast um Mbeumo Þjálfari Messi hættir Tók fram úr Haaland og varð markahæstur Bjarni áfram hjá KA Genoa ljáð Vieira Gekk út eftir afar vandræðalegan tuttugu sekúndna blaðamannafund Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Sjá meira