Hollenska markavélin semur við Manchester City Aron Guðmundsson skrifar 5. júlí 2024 16:01 Vivianne Miedema er orðin leikmaður Manchester City Mynd: Manchester City Hollenski framherjinn Vivianne Miedema er orðin leikmaður Manchester City og skrifar hún undir þriggja ára samning við félagið. Tíðindi sem staðfesta að Miedema verður áfram í ensku ofurdeildinni en hún var áður á mála hjá Arsenal.
Miedema og Arsenal komust að samkomulagi um að leiðir myndu skilja eftir síðasta tímabil en sú hollenska hafði verið á mála hjá Norður-Lundúna félaginu síðan 2017 en lítið spilað undanfarin tvö tímabil eftir að hafa slitið krossband í desember árið 2022. Ljóst þykir þó að ef Miedema nær að koma sér aftur almennilega af stað þá verður það mikill fengur fyrir Manchester City að hafa hana innan sinna raða. Miedema er markahæsti leikmaður ensku ofurdeildarinnar frá upphafi og þekkir það að vinna deildina. Félög í Evrópu sem og Norður-Ameríku höfðu áhuga á að fá hana til liðs við sig en nú er orðið ljóst að hún verður um kyrrt á Englandi. Fremsta lína Manchester City, sem laut í lægra haldi gegn Chelsea í baráttunni um enska meistaratitilinn á síðasta tímabili á lakari markatölu, er farin að líta mjög vel út fyrir komandi tímabil en auk Miedema hefur City markahæsta leikmann síðasta tímabils Bunny Shaw, Lauren Hemp, Chloe Kelly og Mary Fowler innan sinna raða.
Enski boltinn Mest lesið Logið upp á Einar Örn í dönskum miðlum Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Kúbu: Aron gaf tóninn með glans Handbolti Óli Stef ósáttur við Guðmund: „Ekki fengið neina kennslu, þroska og pepp“ Handbolti Myndaveisla: Gleðin við völd innan vallar sem utan Handbolti Skýrsla Henrys: Kúbverjarnir reyktir í Zagreb Handbolti Danir með fullt hús stiga og 55 mörk í plús Handbolti „Ég eiginlega barði þetta í gegn“ Handbolti „Ekki minn stíll að vera í feluleik með Aron“ Handbolti Er Jokic bara að djóka? Körfubolti Sex í röð hjá Napólí Fótbolti Fleiri fréttir Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Haaland sagður fá yfir tólf milljónir í laun á dag næsta áratuginn Samingur Haaland slæmar fréttir fyrir Alan Shearer Denis Law látinn Fer Garnacho frá Manchester United? Chelsea hefur áhuga City búið að finna sinn Salah? Hetja United: „Ein besta vika lífs míns“ Haaland skrifaði undir níu og hálfs árs samning við City Diallo bjargaði málunum fyrir United á Old Trafford Foden: Við erum ekki heimskir, titillinn er farinn Arsenal kom til baka og vann slaginn um Norður-London Isak áfram í stuði og Moyes tapaði fyrsta leik Amorim: Southampton mun kenna mér meira en Liverpool og Arsenal Klopp: Ég held partý ef Man City missir titlana Slot segir að Forest sé í titilbaráttu Glazer-systkinin dvöldu á Vopnafirði í sumar Arftakar Linekers í Match of the Day kynntir Fenginn aftur til Chelsea og spilar ekki í kvöld Littler skildi ekkert hvað Sir Alex sagði Malen mættur til Villa Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi Ótrúleg endurkoma heimamanna James bjargaði heimaliðinu Fyrrum fyrirliði og þjálfari Man City látinn Segja að Zubimendi fari til Arsenal í sumar Arteta um ógeðslegu skilaboðin: „Verður að draga línu í sandinn“ Engin stig tekin af ensku liðunum Tímabilinu líklega lokið hjá Jesus Sjá meira