Skúradembur víða um land Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 19. júlí 2024 07:29 Búast má við rigningu í kvöld. Vísir/Vilhelm Óstöðugt loft er enn þá yfir landinu og má búast við skúradembum nokkuð víða, einkum síðdegis og í kvöld. Hiti ætti að ná um og yfir fimmtán stig þar sem best lætur.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands fyrir daginn í dag. Þar segir einnig að lægðarbóla komi til okkar úr norðri á morgun með vætu fyrir norðan og þá kólnar á þeim slóðum, en fyrir sunnan og austan verður yfirleitt bjartara veður og mildara. Önnur dýpri lægð nálgast svo landið á sunnudag úr austri með vaxandi norðvestanátt og rigningu og kólnandi veðri. Hins vegar verður skaplegra veður syðst á landinu. Á mánudag verður lægðin komin norður af landinu. Nokkuð stíf vestanátt verður þá með áframhaldandi vatnsveðri fyrir norðan en úrkomuminna syðra. Útlit er fyrir hlýtt loft með sunnanátt á þriðjudag og miðvikudag með vætu víða um land, síst þó norðaustanlands. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á laugardag:Norðvestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Rigning norðvestantil þegar kemur fram á daginn, en annars skýjað með köflum og stöku skúrir, einkum síðdegis. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast fyrir sunnan.Á sunnudag:Norðlæg átt, 3-10. Dálítil rigning eða súld fyrir norðan, en úrkomulítið eftir hádegi. Bjart sunnanlands, en stöku síðdegisskúrir. Hvessir seinnipartinn og fer að rigna norðan- og austanlands um kvöldið. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast sunnanlands.Á mánudag:Vestanátt 10-18, hvassast á annesjum norðaustanlands. Talsverð rigning fyrir norðan, en úrkomulítið syðra. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast suðaustanlands.Á þriðjudag:Suðvestlæg átt og dálítil rigning með köflum, en þurrt og yfirleitt bjart fyrir austan. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast austanlands.Á miðvikudag:Útlit fyrir suðaustlæga átt með rigningu, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti svipaður.Á fimmtudag:Austlæg eða breytileg átt og rigning, en úrkomulítið norðaustantil. Milt í veðri.
Veður Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Sjá meira