Hryllir við tilhugsuninni Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 6. ágúst 2024 09:35 „Við skulum orða þetta svona. Þrátt fyrir að flestir sjómenn hafi orðið fyrir gríðarlegum vonbrigðum með útlit samningsins hryllir þá flesta við þeirri tilhugsun að ganga aftur í Evrópusambandið og myndu ekki styðja neitt sem myndi leiða til þess,“ sagði Mike Park, framkvæmdastjóri Scottish White Fish Producers Association, við fréttavefinn Politico.eu í janúar 2021 spurður um sýn brezkra sjómanna á samning ráðamanna í Bretlandi við sambandið um útgöngu landsins úr því (Brexit) með tilliti til sjávarútvegsmála. Haft er enn fremur eftir forsvarsmönnum brezkra sjómanna bæði í áðurnefndri frétt og fleirum að óánægja í röðum þeirra með útgöngusamninginn snúist ekki um andstöðu við útgönguna sem slíka heldur með hvaða hætti staðið hafi verið að henni. Þannig hafi brezk stjórnvöld samið af sér við Evrópusambandið. Einkum með því að láta undan kröfu sambandsins um aðlögunartímabil þar sem aflaheimildir í brezkri efnahagslögsögu væru ekki frá fyrsta degi eingöngu fyrir brezka sjómenn og að samið yrði á ný að því loknu. Hérlendir Evrópusambandssinnar eins og Ole Anton Bieltvedt hafa gert mikið úr óánægju brezkra sjómanna með útgöngusamning Bretlands við Evrópusambandið. Hins vegar má velta því fyrir sér hvað það segi um sambandið að þrátt fyrir þá óánægju vilji þeir alls ekki ganga þar aftur inn. Þetta rímar aftur til að mynda ágætlega við niðurstöður skoðanakönnunar í sumar þess efnis að fleiri vildu að staðið yrði betur að málum í kjölfar útgöngunnar úr sambandinu en þeir sem vildu ganga aftur í sambandið. Horfur í brezku efnahagslífi jákvæðar Fyrir helgi ritaði Ole grein á Vísir.is og vísaði þar meðal annars til fréttar í Viðskiptablaðinu þess efnis að útganga Bretlands úr Evrópusambandinu hefði sogað lífskraftinn úr brezka hagkerfinu. Vildi Ole meina að þar væri verið að vísa í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Ummælin voru hins vegar höfð eftir formanni samtaka Evrópusambandssinna í Bretlandi. Tilefnið var skýrsla frá sjóðnum um stöðu brezkra efnahagsmála þar sem einkum var skírskotað til hagvaxtar sem þó er á hliðstæðum nótum eða meiri en víða innan evrusvæðisins. Horfur í brezkum efnahagsmálum að mati AGS eru hins vegar ágætlega jákvæðar eins og lesa má um í nýjustu skýrslu sjóðsins 8. júlí. „Hagkerfið nálgast mjúka lendingu samhliða meiri hagvaxtaraukningu en gert hafði verið ráð fyrir í kjölfar vægs tæknilegs samdráttar á árinu 2023. Verðbólga hefur farið ört lækkandi og nánast náð verðbólgumarkmiði eftir að hafa verið í tveggja stafa tölu á síðasta ári þar sem miklar hækkanir á orkuverði hafa gengið til baka og áhrif frá aðhaldssamari peningastefnu á eftirspurn hafa skilað sér.“ Hóflegum hagvexti sé spáð í ár, eða 0,7%, og 1,5% á því næsta samhliða hagstæðari efnahagsaðstæðum. Óvissa í kjölfar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu fari áfram minnkandi samhliða bættu fyrirkomulagi á landamærunum að Írlandi, endurskoðun á regluverki sem Bretar hafi erft frá Brussel og harðfylgi brezks útflutningsiðnaðar. Útflutningur til sambandsins sé hins vegar enn að aðlagast nýjum aðstæðum. Með öðrum orðum sé staða mála í brezku efnahagslífi jafnt og þétt að þróast í réttar áttir. Hlutdeild ESB hefur dregizt hratt saman Helzta vandamál Bretlands í tengslum við útgönguna úr Evrópusambandinu tengist íþyngjandi regluverki sem Bretar erfðu frá sambandinu og hefur ekki verið skorið niður eins og til stóð til þess að auka samkeppnishæfni landsins nema að litlu leyti sem komið hefur ekki sízt niður á hagvexti. Hins vegar eru hagvaxtartölur ófárra evruríkja annað hvort á svipuðum slóðum eða verri. Þetta á ekki sízt við um Þýzkaland sem fyrr segir þar sem hagvöxtur var -0,3% á síðasta ári og er búizt við að hann verði einungis 0,1% í ár. Fram kemur í grein Oles að alllangt sé síðan Evrópusambandið hafi orðið „stærsti markaður heims með yfir 500 milljónir“ íbúa. Reyndar er um að ræða innan við 450 milljónir en látum það liggja á milli hluta. Íbúafjöldinn einn segir þó ekki alla söguna. Þannig er sambandið þriðji stærsti markaðurinn í dag sem hlutfall af landsframleiðslu á heimsvísu þegar leiðrétt hefur verið fyrir kaupmætti, sá mælikvarði sem gjarnan er notaður, á eftir Kína og Bandaríkjunum. Til dæmis er fjallað um þetta á vef Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hlutdeild Evrópusambandsins var þannig tæplega 14,5% á síðasta ári á meðan hlutdeild Kína var 18,7% og Bandaríkjanna tæplega 15,6%. Við upphaf aldarinnar var sambandið vissulega enn stærsti markaður heimsins á þennan mælikvarða með rúmlega 20% hlutdeild en hefur síðan jafnt og þétt dregizt aftur úr. Fyrir 40 árum var hlutdeild Evrópusambandsins enn meiri eða tæp 26%. Þrátt fyrir að Bandaríkin séu mun fámennari en sambandið og að ríkjum þess hafi fjölgað mikið hefur þessi þróun haldið áfram. „Endalok dýrðardaga Evrópusambandsins“ Vissulega er það þannig rétt hjá Ole að fyrir alllöngu hafi Evrópusambandið verið stærsta markaðssvæðið en sú er einfaldlega ekki lengur raunin. Forystumenn sambandsins hafa ekki séð sér annað fært á undanförnum árum en að gangast við þessum veruleika. „Frá efnahagslegum sjónarhóli horfum við fram á endalok dýrðardaga Evrópusambandsins í samanburði við það sem aðrir eru að gera,“ sagði til dæmis Jean-Claude Juncker, þáverandi forseti framkvæmdastjórnar sambandsins, í ræðu í Madrid í október 2015. „Evrópusambandinu gengur ekki mjög vel,“ sagði Juncker enn fremur í ræðu sinni. Þannig stæði sambandið frammi fyrir efnahagslegri hnignun. Frá því að ummæli hans féllu hefur jafnt og þétt sigið á verri hliðina. Nú síðast var fjallað um hnignun innri markaðar Evrópusambandsins í skýrslu sem Enrico Letta, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, vann fyrir framkvæmdastjórn þess og gefin var út í apríl síðastliðnum þar sem meðal annars kemur fram að sambandið hafi dregizt verulega aftur úr Bandaríkjunum. „Hlutdeild Evrópusambandsins í heimsbúskapnum hefur dregizt saman undanfarna þrjá áratugi þar sem staða þess á meðal stærstu hagkerfa heimsins hefur versnað hratt samhliða uppgangi asískra hagkerfa. […] Jafnvel þó asísk hagkerfi séu ekki tekin inn í myndina hefur innri markaður Evrópusambandsins einnig dregizt aftur úr Bandaríkjunum. Hagkerfin tvö voru svipuð að stærð árið 1993. Hins vegar jókst landsframleiðsla á mann um 60% í Bandaríkjunum á milli 1993-2022 en innan við 30% innan sambandsins.“ Marklaus gögn frá Evrópusambandinu? Hvað varðar aðra grein sem Ole ritaði á Vísir.is fyrir helgi, þar sem hann mótmælti þeim orðum mínum að telja mætti nær á fingrum annarrar handar þá málaflokkar þar sem einróma samþykki ríkja Evrópusambandsins ætti enn við um með því að nefna málaflokka sem telja má einmitt nánast á fingrum annarrar handar, er athyglisvert að hann skuli hafa kosið að sleppa framhaldinu af beinu tilvitnuninni í mig þess efnis að einróma samþykki ætti hvorki við um sjávarútvegs- né orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu. Vegna þess hve brösulega hefur annars gengið hjá Ole að færa haldbær rök fyrir máli sínu hefur hann ítrekað gripið til þess örþrifaráðs að vega að mér persónulega fyrir þá sök að vilja ekki ganga í Evrópusambandið. Flest hefur verið reynt í þeim efnum. Meðal annars að kalla mig hægriöfgamann og jafnvel reyna að spyrða mig við Mússólíní, reyna að gera lítið úr menntun minni og halda því fram að ég fái greitt fyrir greinaskrif mín sem ég sinni í frítíma mínum og hef ekki fengið krónu fyrir. Sem fyrr án rökstuðnings. Ég kippi mér nú ekki mikið upp við þessa framgöngu Oles enda er hún auðvitað fyrst og fremst til marks um rökþrot. Væri málefnalegum rökum til að dreifa og málstaðurinn góður þyrfti hann vitanlega ekki að grípa til slíkra óyndisúrræða. Markmiðið er að reyna að draga úr trúverðugleika þess sem fyrir verður fyrst ekki er hægt að hrekja rök hans. Í mínu tilfelli rök sem koma einkum frá Evrópusambandinu. Sé hins vegar ekki að marka gögn þaðan eru það fyrir utan annað varla meðmæli með inngöngu í sambandið. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Evrópusambandið Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Skoðun Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
„
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun