Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar 11. október 2026 13:30 Get ég selt hvert kíló af vöðvum sem ég bæti á mig á innlendum kolefnismarkaði til að jafna út losun álversins í Straumsvík? Get ég selt ríkinu rétt minn til barneigna, minnkað kolefnissporið mitt, og ríkið selt barnsígildið til olíufursta í nafni loftslagsaðgerðar? Ef okkar helgustu friðuðu svæði, eins og Þjórsárver sem hafa verið kölluð hjarta hálendisins, sleppa ekki einu sinni við vafasamar framkvæmdir er þá ekki bara tímaspursmál hvenær hjarta mitt verður fært í biðflokk? Ég gróf sem barn lambið Lilla, sem var með afmyndaða fætur og elskaði að vera klappað, í haganum heima. Hvar get ég fært þessi 3 kíló af kolefni og krútti á skrá fyrir kolefnisjöfnun stórfyrirtækja? Ef ég endurheimti votlendið í grafreit forfeðra minna hve mörg tonn af kolefni mega evrópsk fyrirtæki básúna út í staðinn? Þarf ég að endurheimta mýrina í bakgarðinum mínum í leyni, í skjóli nætur, svo kolefnið sem mýrin mun binda verði ekki notað sem réttlæting meiri losunar annars staðar? Er til of mikils ætlast að eigendur stórfyrirtækja hætti að fá milljarða í arð árlega á kostnað framtíðarkynslóða? Þarf allt að vera góður bissniss og skila sér í vasa þeirra sem menga mest hvort sem er? Er til of mikils mælst að þeir sem hafa völdin og fjármagnið hætti að auka ójöfnuð á kostnað lífvænlegs umhverfis fyrir mannkynið allt? Vegur réttur minn til framtíðar, náttúrunnar sem ég elska, hreins lofts og næringar, vegur sá réttur svona mikið minna en ársfjórðungslegur hagnaður út í hið óendanlega? Er ég einskis virði utan kolefnisins sem ég bind í líkama mínum? Þarf að græða vindmyllur í lungun og reisa gagnaver á bakinu á mér til að ég fái aðgang að framtíðinni og sæti við borðið? Ef að krabbamein hagaði sér eins og hagkerfi heimsins í dag væri læknirinn búinn að tilkynna okkur að aðeins nokkrar vikur væru eftir. Fimm fyrirtæki á íslandi bera ábyrgð á fjörutíu prósentum af heildarlosun Íslands. Þessi fyrirtæki eru Alcoa Fjarðaál, Norðurál, Icelandair, Elkem og Rio Tinto Alcan. Þau losa samanlagt 2,1 milljón tonna af CO2 ígildum. Þetta eru sömu fyrirtækin, fyrir utan Icelandair, sem nota hve mest rafmagn á Íslandi. Meira en 80% raforku sem framleidd er hér á landi er seld til stórnotenda. Markaðurinn kallar sífellt á meira rafmagn, fleiri virkjanir, að náttúru landsins sé fórnað fyrir kílówattsstundir. Og orkan fer að mestu leyti í mengandi iðnað þar sem hagnaðurinn endar í vasa fárra erlendra aðila. Ég veit ekki með þig en mér finnst þetta dæmi ekki ganga upp. Hvers virði er réttur framtíðarkynslóða til náttúru landsins, til lífvænlegs loftslags, þegar sá réttur er veginn á móti hagnaði stórfyrirtækja? Sem stendur virðist sá réttur vera sem fjöður móti múrsteini á vogarskálunum. En við getum breytt því og skorið krabbameinið burt. Vilji er allt sem þarf. Höfundur er jarðeðlisfræðingur að mennt og varaforseti Ungra umhverfissinna Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun