Samstarfið við Braathen bjó til Loftleiðaævintýrið Kristján Már Unnarsson skrifar 16. september 2024 21:21 Geirþrúður Alfreðsdóttir og Haukur Alfreðsson, tvö af börnum Alfreðs Elíassonar og Kristjönu Millu Thorsteinsson. Egill Aðalsteinsson Samstarf Loftleiðamanna við flugfélag norska skipakóngsins Ludvigs Braathen var í raun byrjunin á Loftleiðaævintýrinu, að mati barna Alfreðs Elíassonar, stofnanda Loftleiða. Þetta kom fram í þættinum Flugþjóðin.
Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að saga Loftleiða er oft talin eitt mesta viðskiptaævintýri Íslandssögunnar. Þegar við spyrjum um vendipunktinn víkja þau Geirþrúður og Haukur Alfreðsbörn sögunni aftur til ársins 1952 þegar Loftleiðamenn ákváðu að hætta innanlandsflugi og einbeita sér að millilandaflugi. Skymaster-flugvélin Hekla við fyrstu flugstöð Loftleiða á Reykjavíkurflugvelli.Halldór Sigurjónsson „Á sama tíma byrjuðu þeir þetta samstarf við Braathen, sem var mjög heillavænlegt fyrir Loftleiðir,” segir Geirþrúður Alfreðsdóttir flugstjóri. Norski skipakóngurinn Ludvig Braathen hafði stofnað flugfélagið Braathens SAFE árið 1946. Sama ár keyptu Loftleiðamenn fjögurra hreyfla Skymaster-flugvél, sem hlaut nafnið Hekla. „Það er í raun stórmerkilegt samstarf sem gekk mjög vel. Og upp frá því byrjar í raun og veru þetta Loftleiðaævintýri,“ segir Haukur Alfreðsson verkfræðingur. Kristinn Halldórsson varðveitir myndasafn föður síns, Halldórs Sigurjónssonar, fyrsta flugvirkja Loftleiða. Á skjánum er mynd frá Miklavatni í Fljótum þar sem Sigurður Jónsson, Siggi flug, stendur á milli Alfreðs Elíassonar og Kristins Olsen.Egill Aðalsteinsson Kristinn Halldórsson flugvélaverkfræðingur, sonur Halldórs Sigurjónssonar, fyrsta flugvirkja Loftleiða, segir Loftleiðamenn hafa öðlast dýrmæta alþjóðlega reynslu í rekstri millilandaflugvéla með samstarfi við Braathens. „Þá flaug Heklan aðra hvora viku til Hong Kong og þá flaug vél frá Braathens fyrir Loftleiðir til Bandaríkjanna á þeirra vegum. Þannig byrjaði þessi samvinna við Braathens, sem var mjög góð fyrir bæði fyrirtækin. Braathens sá um viðhaldið á vélunum og voru umboðsmenn þeirra víða. Það var bara góð samvinna þar í rúman áratug,“ segir Kristinn. Alfreð Elíasson í flugstjórasætinu á Heklu á Reykjavíkurflugvelli.Halldór Sigurjónsson „Með því að vera í samstarfi við Braathen skapast mikill sveigjanleiki. Þeir eru ekki að binda mikið fjármagn í að kaupa flugvélar. Þeir eru í samstarfi við Braathen í leigu á flugvélum og þeir hjálpa þeim með viðhaldið á flugvélunum líka. Þannig að þeir grípa bara öll tækifæri sem þeir geta og fá alltaf aðstoð frá Braathen,“ segir Haukur. Fjallað var um sögu Loftleiða frá 1944 til 1973 í þriðja þætti Flugþjóðarinnar á Stöð 2 í kvöld. Áskrifendur Stöðvar 2 og Stöðvar 2+ geta séð þáttinn í streymisveitu Stöðvar 2 hvar og hvenær sem er. Hér má sjá brot úr þættinum: Í fjórða þætti Flugþjóðarinnar, sem er á dagskrá mánudagskvöldið 23. september, verður fjallað um efnahagsáhrif af flugstarfsemi Íslendinga. Hér má sjá kynningarstiklu þáttaraðarinnar:
Flugþjóðin Fréttir af flugi Icelandair Tengdar fréttir Koma fyrstu þotunnar einn af hápunktum flugsögu Íslands Koma Gullfaxa, fyrstu þotunnar, er einn af hápunktum flugsögu Íslendinga. Í þættinum Flugþjóðin á Stöð 2 rifja fyrrverandi starfsmenn Flugfélags Íslands upp þætti úr sögu félagsins, þar á meðal daginn þegar Boeing 727-þotan lenti á Reykjavíkurflugvelli í júnímánuði 1967. 15. september 2024 07:27 Var stórhissa á því hvað pabbi hafði gert mikið „Við stöndum að eilífu í þakkarskuld við þessa frumkvöðla,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra í ávarpi við opnun sýningar í tilefni 80 ára afmælis Loftleiða. Með uppbyggingu á fluginu með Ísland sem tengimiðstöð hefðu þeir lagt grunninn að þeirri öflugu ferðaþjónustu sem til væri orðin í landinu. 9. mars 2024 07:47 Í þessum hópi ræða menn um bilaða flugvélahreyfla Svo vænt þykir fyrrverandi starfsmönnum Loftleiða um sitt gamla félag að þeir halda úti sérstökum aðdáendaklúbbi. Þar lifir enn gamli Loftleiðandinn þar sem öldungar rifja upp glæsta tíma í flugsögunni. 7. janúar 2023 21:10 Flugfreyjur í stuttum pilsum þurftu að teygja sig upp Þær byrjuðu margar að fljúga á árunum upp úr 1960 og voru fyrsta kynslóðin sem gerði flugfreyjustarfið að ævistarfi. Þær halda enn hópinn, sem telur meira að segja fyrrverandi forsætisráðherra, og rifja upp gamlar sögur úr fluginu. 2. apríl 2023 06:21 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira
Koma fyrstu þotunnar einn af hápunktum flugsögu Íslands Koma Gullfaxa, fyrstu þotunnar, er einn af hápunktum flugsögu Íslendinga. Í þættinum Flugþjóðin á Stöð 2 rifja fyrrverandi starfsmenn Flugfélags Íslands upp þætti úr sögu félagsins, þar á meðal daginn þegar Boeing 727-þotan lenti á Reykjavíkurflugvelli í júnímánuði 1967. 15. september 2024 07:27
Var stórhissa á því hvað pabbi hafði gert mikið „Við stöndum að eilífu í þakkarskuld við þessa frumkvöðla,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra í ávarpi við opnun sýningar í tilefni 80 ára afmælis Loftleiða. Með uppbyggingu á fluginu með Ísland sem tengimiðstöð hefðu þeir lagt grunninn að þeirri öflugu ferðaþjónustu sem til væri orðin í landinu. 9. mars 2024 07:47
Í þessum hópi ræða menn um bilaða flugvélahreyfla Svo vænt þykir fyrrverandi starfsmönnum Loftleiða um sitt gamla félag að þeir halda úti sérstökum aðdáendaklúbbi. Þar lifir enn gamli Loftleiðandinn þar sem öldungar rifja upp glæsta tíma í flugsögunni. 7. janúar 2023 21:10
Flugfreyjur í stuttum pilsum þurftu að teygja sig upp Þær byrjuðu margar að fljúga á árunum upp úr 1960 og voru fyrsta kynslóðin sem gerði flugfreyjustarfið að ævistarfi. Þær halda enn hópinn, sem telur meira að segja fyrrverandi forsætisráðherra, og rifja upp gamlar sögur úr fluginu. 2. apríl 2023 06:21