Veszprém og Pick Szeged jöfn að stigum fyrir toppslaginn Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. nóvember 2024 18:38 Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk úr hægra horninu fyrir Veszprém. Ayman Aref/NurPhoto via Getty Images Veszprém og Pick Szeged eru jöfn í efsta sæti ungversku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Bæði lið unnu sína leiki í dag og mætast innbyrðis í næstu umferð.
Pler – Pick Szeged 27-41 Pick Szeged vann stórsigur á útivelli gegn Pler, liði frá höfuðborginni Búdapest. Sigurinn var aldrei í hættu fyrir efsta lið deildarinnar gegn 9. sætinu. Fjórtán mörkum munaði þegar flautað var af, 27-41. Janus Daði Smárason eyddi rúmlega 31 mínútu á gólfinu og skoraði 5 mörk úr 6 skotum fyrir Pick Szeged. Hann var þriðji markahæstur á eftir Spánverjanum Imanol Garciandia sem skoraði sjö mörk og Ungverjanum Bánhidi Bence sem skoraði sex. Veszprém – Gyöngyös 40-25 Ríkjandi meistararnir tóku á móti liðinu sem situr í 11. sæti og unnu öruggan og stóran sigur. 40-25 lokaniðurstaðan í lítið spennandi leik. Bjarki Már Elísson átti góðan leik í vinstra horni heimaliðsins, spilaði tæpar 35 mínútur og skoraði 5 mörk úr 7 skotum. Aron Pálmarsson gekk nýlega til liðs við Veszprém en hefur ekki enn spilað leik. Hann hefur verið að glíma við meiðsli. Staðan í deildinni Vesprém er í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga, 16 stig eftir 8 leiki. Pick Szeged er í öðru sæti með jafnmörg stig en hefur leikið einum fleiri leik. Tapið kom gegn Csurgó í þarsíðustu umferð. Toppslagur verður svo leikinn í næstu umferð þegar Pick Szeged tekur á móti Vesprém.
Handbolti Ungverski handboltinn Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Sport Ingibjörg valin sú efnilegasta Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Fleiri fréttir „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sjá meira