Ólögmæt sóun skattfjár Markús Ingólfur Eiríksson skrifar 12. nóvember 2024 07:15 Þjóðfélagslega umræðan undanfarið hefur verið lituð af vangaveltum um í hvað skattpeningarnir okkar fara því fólki finnst réttilega að sú þjónusta sem það á rétt á af hálfu ríkisins sé verulega ábótavant. Í mínum huga snýst vandinn fyrst og fremst um þá gríðarlegu sóun sem á sér stað á fjármunum ríkisins fremur en einhver pólitísk þrætuepli. Almenn sátt ætti að ríkja um að allir landsmenn hefðu eftir þörfum aðgengi að hágæða þjónustu af hálfu ríkisins, t.d. heilbrigðis-, mennta-, samgöngu, og löggæsluþjónustu, fyrir það skattfé sem er til ráðstöfunar hverju sinni. Síðan má deila pólitísk um hversu háir skattar eigi að vera og hversu mikla þjónustu eigi að veita, en það mikilvægasta er að binda enda á þá sóun á skattfé sem hefur fengið að grassera alltof lengi. Það er reyndar bundið í lög um opinber fjármál að ráðstöfun á skattfé okkar eigi að tryggja „skilvirka og hagkvæma opinbera fjárstjórn og starfsemi.“ Þetta er alls ekki gert í heilbrigðisgeiranum og þar er ekki við forstjóra ríkistofnana að sakast heldur heilbrigðisráðuneytið sjálft og ráðherra málaflokksins. Órökréttur ríkisrekstur Forsenda þess að hægt sé að leysa vanda hverju sinni er að átta sig á í hverju hann felst og viðurkenna hann. Því meira sem ég hef kynnst ríkisrekstrinum, því minna skil ég í honum enda er hann órökréttur. Í rauninni er sóunin það mikil að mér ofbýður hvernig farið er með skattfé í landinu okkar. Langflestir finna það á eigin skinni að sú þjónusta sem fólk á rétt á, er verulega ábótavant en áttar sig eðlilega ekki á því hvar er pottur brotinn. Því lít ég á það sem mína samfélagslega skyldu að miðla þeirri vitneskju sem ég hef öðlast svo unnt sé að grípa til bráðnauðsynlegra aðgerða til að draga úr sóun. Það eru kosningar eftir fáar vikur og tíminn er því aldrei betri en núna. Afar mikilvægt er að næsta ríkisstjórn skipi ráðherra sem búi yfir getu til að standa undir þeirri ábyrgð sem þeim verður falin. Krónunni kastað fyrir aurinn Listinn yfir brotalamir í rekstri ríkisins er því miður alltof langur. Það sem stingur einna mest í augu er að þegar ákvarðanir um útgjöld eru teknar eru hlutirnir ekki hugsaðir til enda. Aurinn er hirtur og krónunni kastað. Þannig er ekki nægilegu fé varið til fjárfestinga sem draga úr útgjöldum ríkisins síðar meir. Samkvæmt lögreglustjóranum á Suðurnesjum skortir fjárveitingar á landamærunum til þess að hindra för erlendra glæpamanna á leið inn í landið. Skaðinn sem þeir valda íbúum landsins og kostnaður í dómskerfinu er miklu meiri en það myndi kosta að koma í veg fyrir að þeir kæmust inn í landið. Hver er á endanum sparnaður ríkisins af slíku „aðhaldi í ríkisfjármálum“? Það er eins og annað í ríkisrekstrinum, spara aurinn en kasta krónunni. Ef heimili landsins yrðu rekin eins og íslenska ríkið myndu þau draga úr útgjöldum til kaupa á tannburstum og tannkremi og svo þegar fram liðu stundir, neyðast til að velta vöngum yfir mjög auknum kostnaði vegna tíðra heimsókna til tannlækna. Þeir sem hafa þekkinguna á kerfinu, hafa völdin Til að útskýra hvernig íslenska ríkinu er stjórnað má vitna til bresku sjónvarpsþáttanna „Já ráðherra“ (e. Yes minister). Í þeim kemur glöggt fram að þekkingin á hvernig kerfið virkar liggur fyrst og fremst hjá embættismönnunum í ráðuneytunum enda þurfa þeir einvörðungu að setja sig inn í málaflokka þeirra ráðuneytis. Eðli máls samkvæmt eykst þekkingin með starfsaldri þeirra sem er oft langur. Aftur á móti er æði misjafnt hvaða þekkingu þeir hafa á rekstri. Slíkt er bagalegt þar sem að þeir embættismenn sem taka ákvarðanir um fjárveitingar ríkisins hafa í reynd öll völdin í hendi sér. Sá hópur embættismanna er ekki mjög fjölmennur. Öðru máli gegnir um þekkingu ráðherra sem staldra jafnvel stutt við eða hafa ekki getu til að valda sínu hlutverki. Sömu sögu má segja um kjörna fulltrúa á Alþingi sem hafa það hlutverk að hafa eftirlit með framkvæmdavaldinu. Það má nefnilega vera ljóst af hnignandi stöðu heilbrigðiskerfisins, að þekking innan þingsins á því hvernig það virkar, er verulega ábótavant. Af þessum sökum þarf að gera þinginu kleift að greiða fyrir veitta sérþekkingu og innsýn í kerfið. Þannig er hægt að snúa upplýsingahallanum við þannig að ráðuneytisstarfsfólkið geti ekki misbeitt þekkingarvaldi sínu. Plástrar munu ekki duga Í mínum huga er vandinn við uppbyggingu stjórnkerfis landsins það djúpstæður að hann verður ekki leystur nema með uppstokkun. Að öðrum kosti heldur embættismannaflokkurinn áfram að stjórna landinu með ólýðræðislegum hætti. Þá verðum bara já-ráðherruð áfram, greiðum háa skatta og fáum ófullnægjandi þjónustu af hálfu ríkisins að launum. Höfundur er doktor í endurskoðun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skattar og tollar Markús Ingólfur Eiríksson Mest lesið Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun