Innlent

Fyrsta flug þotu sem markar þátta­skil í sögu Icelandair

Kristján Már Unnarsson skrifar
Fyrsta flugtakið í Hamborg í gær.
Fyrsta flugtakið í Hamborg í gær. Airbus/Icelandair

Fyrsta Airbus-þota Icelandair fór í sitt fyrsta reynsluflug í Hamborg í gær. Stefnt er að því að flugvélin komi til landsins 3. desember og hefji áætlunarflug viku síðar.

Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá fyrsta flugtakið en nítján mánuðir eru frá því ráðamenn Icelandair kynntu þá tímamótaákvörðun að velja Airbus. Þetta verður í fyrsta sinn sem Icelandair og forverar þess fá nýja þotu frá öðrum framleiðanda en Boeing.

Þotan sem markar þáttaskilin er af gerðinni Airbus A321 LR, eða long range, og tekur 187 manns manns í sæti. Stefnt er að því að hún hefji áætlunarflug á leiðum Icelandair þann 10. desember; morgunflug til Stokkshólms og síðdegisflug til Kaupmannahafnar.

Þotunni ekið frá samsetningarverksmiðju Airbus áleiðis að flugbrautinni.Airbus/Icelandair

Að sögn Guðna Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa félagsins, verður þota númer tvö afhent í byrjun næsta árs og verða þær orðnar fjórar í flotanum fyrir næsta sumar. Fyrir sumarið 2026 er svo á von á þremur til viðbótar en þær leysa Boeing 757-þoturnar af hólmi.

Þessar sjö þotur verða teknar á leigu tímabundið þar til félagið fær langdrægustu útgáfuna, A321 XLR, sem stendur fyrir extra long range, en hún er eins í útliti. Icelandair er búið að semja um kaup á allt að 25 þotum þeirrar gerðar og bætast þær fyrstu inn í flotann árið 2029.

Hér má sjá fyrsta flugið:


Tengdar fréttir

Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag

Fyrsta Airbus-þota Icelandair fór í sitt fyrsta reynsluflug frá Airbus-verksmiðjunum í Hamborg í Þýskalandi í dag. Flugvélin, af gerðinni Airbus A321neo, hóf sig til flugs laust eftir hádegi að staðartíma.

Koma fyrstu þotunnar einn af hápunktum flugsögu Íslands

Koma Gullfaxa, fyrstu þotunnar, er einn af hápunktum flugsögu Íslendinga. Í þættinum Flugþjóðin á Stöð 2 rifja fyrrverandi starfsmenn Flugfélags Íslands upp þætti úr sögu félagsins, þar á meðal daginn þegar Boeing 727-þotan lenti á Reykjavíkurflugvelli í júnímánuði 1967.

Nýjasta þota Airbus í krefjandi prófunum í hvassviðri í Keflavík

Flugvélaframleiðandinn Airbus nýtti sér hvassviðrið á Íslandi í dag til flugprófana á nýjustu farþegaþotu sinni með því að lenda henni margsinnis í stífum hliðarvindi. Þetta er samskonar þota og ráðamenn Icelandair veðja á sem sína framtíðarvél.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×