Skoðun

Eitt heimili, ein fjöl­skylda og ein heilsa

Pétur Heimisson skrifar

Umhverfismál eru heilbrigðismál

Heilbrigð náttúra er undirstaða afkomu okkar og velsældar líkt og verið hefur alla tíð. Umgengni okkar um náttúru og náttúruleg gæði þarf því ekki bara að vera góð, heldur líka á forsendum náttúrunnar sjálfrar, svo sem frekast er unnt. Andi laga um náttúruvernd býður okkur að gera það, nokkuð sem ég fullyrði hins vegar að við gerum ekki sem skyldi. Hugum aðeins að eignarhaldi á náttúrunni áður en lengra er haldið.

Hver á og fyrir hvern er náttúran?

Þegar við tölum um að varðveita tiltekin landsvæði fyrir komandi kynslóðir, þá felst mögulega í því tvíþættur misskilningur; að maður og náttúra séu tvennt og að náttúran sé til fyrir manninn. Maðurinn á ekki náttúruna og hún er ekki til fyrir hann umfram annað líf. Viðkvæman vef lífsins spinna margir og ekki síst smáar og örsmáar lífverur, sem við gjarnan köllum óæðri. Maðurinn eins og aðrar lífverur er hluti þessa flókna vefs, en er líka ábyrgur fyrir mestum skemmdum á honum og þannig veikasti hlekkurinn í keðju alls jarðlífsins. Það ætti að vera okkur hvati til að láta náttúruna ávallt njóta bæði vísindalegs vafa og vissu, sem í dag er ekki. Því til staðfestingar lengist stöðugt listinn yfir útdauðar lífverur af mannavöldum. Jörðin er sameiginlegt heimili alls lífs sem á henni lifir og maðurinn bara einn margra fjölskyldumeðlima.

Heilsa fyrir allt og öll

Allir þeir þættir sem áhrif hafa á heilsu fólks til góðs eða ills nefnast áhrifaþættir heilsu, sjá mynd á heimasíðu Landlæknis; https://island.is/heilsueflandi-samfelag/heimsmarkmidin Náttúrulegt umhverfi á mjög stóran hlut í þeirri mynd. Mun yngra er hugtakið One Health (Ein heilsa), sem felur í sér samþætta og sameinandi nálgun með það að markmiði að hámarka heilsu fólks, dýra og vistkerfa, þ.e. alls lífs á jörðinni og um leið sjálfrar jarðarinnar. Fólksfjölgun, fólksflótti og útþensla, m.a. og ekki síst vegna stríða og hnattrænnar hlýnunar hafa aukið snertifleti fólks þvert á heimsálfur, sem og á milli manna og villtra dýra og milli húsdýra og villtra dýra. Yfir 60% nýrra bráðra sýkinga í mönnum eru upprunnar í dýraríkinu. Þessi nálgun er því ekki bara rökrétt, heldur líka nauðsynleg til að koma í veg fyrir og undirbúa samfélög til að takast á við hnattrænar ógnir eins og t.d. Covid-19 nýverið.

Við öll, þ.e. plöntur, menn og dýr, tilheyrum einni fjölskyldu og sameiginlegt heimili okkar er jörðin. Allir fjölskyldumeðlimir eiga í grunninn rétt til lífs og erfitt er að færa fyrir því rök að einn fjölskyldumeðlimur, maðurinn, eigi þann rétt umfram hina. Umhverfis- og náttúruverndarmál eru því sameiginlegt og brýnasta heilbrigðismál allra meðlima jarðarfjölskyldunnar.

Friðun lífvera er megin reglan í lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og nýting er undantekning frá þeirri reglu. Hliðstæðan rétt þarf íslensk náttúra að öðlast að lögum.

Höfundur er heimilislæknir og á sæti í Umhverfis- og framkvæmdaráði Múlaþings fyrir VG og situr í stjórn hreyfingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×