Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. nóvember 2024 08:32 Guglielmo Vicario fagnar sigri á Manchester City en finnur greinilega mikið til í ökklanum á sama tíma. Getty/Simon Stacpoole Guglielmo Vicario, markvörður Tottenham, spilar ekki fótbolta á næstunni eftir að hafa lagst á skurðarborðið í gær.
Í ljós kom að Vicario ökklabrotnaði í 4-0 sigrinum á Englandsmeisturum Manchester City um helgina. Tottenham tilkynnti það á miðlum sínum í gærkvöldi að leikmaðurinn hafi farið í gærdag í aðgerð á hægri ökkla. Þeir sem horfðu á leikinn tóku greinilega eftir því að Vicario meiddist í fyrri hálfleiknum eftir samstuð við leikmann City. Hann harkaði af sér og kláraði leikinn. Það er sem meira er að hann hélt marki sínu hreinu þrátt fyrir að vera ökklabrotinn. Vicario varði alls fimm skot í leiknum. Tottenham segir að félagið fylgi nú læknaliði félagsins í einu og öllu þegar kemur að ákveða um framhaldið hjá markverðinum. Félagið segist líka ætla að veita leikmanninum allan þann stuðning sem hann þarf á að halda. Það er aftur á móti ljóst að Vicario verður lengi frá. Varamarkvörður Tottenham á móti City var hinn 36 ára gamli Fraser Forster. Hann spilaði síðast deildarleik með Spurs tímabilið 2022-23 en hefur staðið í markinu í einstaka bikarleikjum og Evrópuleikjum. View this post on Instagram A post shared by Fabrizio Romano (@fabriziorom)
Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira