Lífið samstarf

Gleði á for­sýningu Sambíóanna og Bylgjunnar á Vaiana 2

Bylgjan
Gestir skemmtu sér konunglega á sérstakri forsýningu Bylgjunnar og Sambíóanna á myndinni Vaiana 2. Myndin verður frumsýnd á morgun.
Gestir skemmtu sér konunglega á sérstakri forsýningu Bylgjunnar og Sambíóanna á myndinni Vaiana 2. Myndin verður frumsýnd á morgun.

Heppnir hlustendur Bylgjunnar streymdu í bíó á sunnudaginn ásamt leikurum og starfsliði Sýrlands en hátt í 280 gestir skemmtu sér á forsýningu Disneymyndarinnar Vaiana 2 í Sambíóunum Kringlunni.

Hin hugrakka Vaiana er semsagt aftur mætt til leiks og ratar í svakaleg ævintýri því þó lífið á eyjunni Motunui blómstri finnur Vaiana á sér að eitthvað meira liggur handan sjóndeildarhringsins. Eftir óvænt samtal við forfeður sína leggur Vaiana af stað í ævintýralega sjóferð.

Meðal gesta mátti sjá áhrifavaldana Birtu Líf, Sólrúnu Diego, Jóhönnu Helgu, Tinnu Laxdal og Hildi Gunnlaugs. Þá mætti sjálfur Tommi Steindórs á X977 með fjölskylduna. Myndin verður frumsýnd í öllum bíóhúsum á morgun 27. nóvember og sýnd bæði með ensku og íslensku tali.

Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir frá viðburðinum:

Þessi tala fyrir persónur myndarinnar:

Leikraddir:

VIANA - Agla Bríet Bárudóttir 

MAUI - Orri Huginn Ágústsson 

MONI - Unnsteinn Manúel Stefánsson 

MATANGI - Viktoría Sigurðardóttir 

LOTO - Berglind Alda Ástþórsdóttir 

KELE - Þórhallur Sigurðsson 

SIMEA - Rán Karlsdóttir 

CHIEF TUI - Hjálmar Hjálmarsson 

SINA - Sigríður Eyrún Friðriksdóttir

GRANDMA - Hanna María Karlsdóttir 

TAMATOA - Eyþór Ingi Gunnlaugsson 

TAUTAI VASA - Davíð Guðbrandsson 

NALO Hannes Óli Ágústsson

Klippa: Forsýning Bylgjunnar og Sambíóanna á Vaiana 2 vel sótt






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.