Veður

Frost fór víða yfir tuttugu stig í nótt

Atli Ísleifsson skrifar
Það mun bæta smám saman í vind seinni partinn á landinu.
Það mun bæta smám saman í vind seinni partinn á landinu. Vísir/Vilhelm

Vindur er nú víðast hvar hægur á landinu og verður bjart með köflum og hörkufrost, en það fór yfir tuttugu stig á nokkrum veðurstöðvum í nótt. Það blæs þó nokkuð við suðausturströndina og þar eru einhverjir úrkomubakkar á sveimi.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í dag nálgist lægð sunnan úr höfum, allra kaldasta loftið hörfi undan og það dragi úr frosti.

„Seinnipartinn verða skil frá lægðinni skammt fyrir sunnan land, þá bætir smám saman í vind og það þykknar upp, víða snjókoma í kvöld, en líklega úrkomulítið á Norðvestur- og Vesturlandi.

Gengur í norðaustan 13-20 m/s á morgun, hvassast suðaustantil. Á austurhelmingi landsins má búast við snjókomu og skafrenningi og þar eru líkur á að færð spillist, einkum á Suðausturlandi og Austfjörðum. Á norðvestanverðu landinu verður úrkoman éljakenndari, og suðvestanlands ætti að hanga þurrt. Frost 0 til 7 stig. Annað kvöld fer að draga úr ofankomu.

Á sunnudag er svo útlit fyrir minnkandi norðanátt og él, en yfirleitt þurrt og bjart veður sunnan heiða. Herðir á frosti,“ segir í

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Norðaustan 13-20 m/s, hvassast suðaustantil. Snjókoma á austurhelmingi landsins, og él um landið norðvestanvert, en yfirleitt þurrt suðvestanlands. Frost 0 til 7 stig. Dregur úr ofankomu undir kvöld.

Á sunnudag (fullveldisdagurinn): Minnkandi norðanátt, 3-10 m/s seinnipartinn en 10-15 á Suðaustur- og Austurlandi. Víða él, en bjart að mestu sunnan heiða. Herðir á frosti, 5 til 17 stig undir kvöld, kaldast inn til landsins.

Á mánudag: Vaxandi suðaustanátt og stöku él, 10-18 sunnan- og vestantil síðdegis og hlýnar með slyddu eða snjókomu. Hægari vindur á Norðaustur- og Austurlandi og lengst af þurrt og kalt, en dregur úr frosti um kvöldið.

Á þriðjudag: Suðlæg átt 8-15 og rigning, slydda eða snjókoma með köflum, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti um eða yfir frostmarki.

Á miðvikudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og stöku skúrir eða él. Heldur kólnandi. Vaxandi austanátt og fer að rigna suðaustantil um kvöldið.

Á fimmtudag: Norðlæg átt og slydda eða snjókoma, en úrkomuminna sunnan heiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×