Það er komið að þér Eyjólfur Ármannsson skrifar 30. nóvember 2024 08:33 Flokkur fólksins berst fyrir því að útrýma fátækt og óréttlæti á Íslandi, og að allir fái lifað mannsæmandi lífi. Lífsgæði eiga ekki að vera einkaréttur útvalinna. Það segir okkur nokkuð um samfélag okkar og kerfi þegar í einu ríkasta samfélagi heims að stofna þurfi nýja stjórnmálaflokk til að berjast gegn fátækt, Flokk fólksins. Flokkur fólksins berst fyrir mannúðlegu almannatryggingakerfi. Flokkur fólksins berst fyrir því að eldra borgarar geti lifað áhyggjulaust ævikvöld. Við viljum gera kennslu að eftirsóknarverðu starfi með því að bæta kjör kennara og bæta starfsaðstæður þeirra. Efla þarf lestrarkennslu og endurskoða áherslur og aðferðir. Á landsbyggðinni er krafan að íbúar sjávarbyggða njóti aukins réttar til að nýta sjávarauðlindina með jákvæðum áhrifum fyrir sjávarplássin. Við viljum frjálsar handfæraveiðar smábáta því þær ógna ekki fiskistofnum. Við munum lögfesta bann við jarðarkaupum erlendra auðjöfra. Við munum forgangsraða orku fyrir heimili landsins og grunninnviði samfélagsins og koma í veg fyrir orkuskort með því að virkja meira. Við munum tryggja að Landsvirkjun verði ávallt í eigu þjóðarinnar. Flokkur fólksins berst fyrir umbótum og velferð fyrir alla og sækist eftir umboði kjósenda til setu á Alþingi á grundvelli skýrra forgangsmála. Á kjörtímabilinu höfum við þrátt fyrir að vera í stjórnarandstöðu fengið ýmsu afrekað. Við komum í veg fyrir að persónuafsláttur lífeyrisþega erlendis yrðu felldur brott og tryggðum fátækum ellilífeyrisþegum jólaeingreiðslu, nokkuð sem við hyggjumst festa í sessi og útvíkka ef við fáum stuðning kjósenda. Stefna og barátta okkar á kjörtímabilinu er skýr. Við berjumst fyrir þig. Kjósum x-F. Það er komið að þér. Höfundur er oddviti F-lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Norðvesturkjördæmi Flokkur fólksins Eyjólfur Ármannsson Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
Flokkur fólksins berst fyrir því að útrýma fátækt og óréttlæti á Íslandi, og að allir fái lifað mannsæmandi lífi. Lífsgæði eiga ekki að vera einkaréttur útvalinna. Það segir okkur nokkuð um samfélag okkar og kerfi þegar í einu ríkasta samfélagi heims að stofna þurfi nýja stjórnmálaflokk til að berjast gegn fátækt, Flokk fólksins. Flokkur fólksins berst fyrir mannúðlegu almannatryggingakerfi. Flokkur fólksins berst fyrir því að eldra borgarar geti lifað áhyggjulaust ævikvöld. Við viljum gera kennslu að eftirsóknarverðu starfi með því að bæta kjör kennara og bæta starfsaðstæður þeirra. Efla þarf lestrarkennslu og endurskoða áherslur og aðferðir. Á landsbyggðinni er krafan að íbúar sjávarbyggða njóti aukins réttar til að nýta sjávarauðlindina með jákvæðum áhrifum fyrir sjávarplássin. Við viljum frjálsar handfæraveiðar smábáta því þær ógna ekki fiskistofnum. Við munum lögfesta bann við jarðarkaupum erlendra auðjöfra. Við munum forgangsraða orku fyrir heimili landsins og grunninnviði samfélagsins og koma í veg fyrir orkuskort með því að virkja meira. Við munum tryggja að Landsvirkjun verði ávallt í eigu þjóðarinnar. Flokkur fólksins berst fyrir umbótum og velferð fyrir alla og sækist eftir umboði kjósenda til setu á Alþingi á grundvelli skýrra forgangsmála. Á kjörtímabilinu höfum við þrátt fyrir að vera í stjórnarandstöðu fengið ýmsu afrekað. Við komum í veg fyrir að persónuafsláttur lífeyrisþega erlendis yrðu felldur brott og tryggðum fátækum ellilífeyrisþegum jólaeingreiðslu, nokkuð sem við hyggjumst festa í sessi og útvíkka ef við fáum stuðning kjósenda. Stefna og barátta okkar á kjörtímabilinu er skýr. Við berjumst fyrir þig. Kjósum x-F. Það er komið að þér. Höfundur er oddviti F-lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi.